Þorbjörn Aðalfundir
Þorbjörn Aðalfundir

Mannlíf

Ósk orðin að veruleika á Ásbrú
Miðvikudagur 28. maí 2025 kl. 15:16

Ósk orðin að veruleika á Ásbrú

„Reykjanesbær gleðst innilega yfir því að framúrskarandi verkefnið „Börnin að borðinu“ hlaut Hönnunarverðlaun Íslands fyrir verk ársins 2024. Verkefnið var unnið með nemendum Háaleitisskóla vorið 2024, þar sem börn fengu tækifæri á að hafa áhrif á mótun nærumhverfis síns,“ segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Eitt af því sem börnin lögðu áherslu á í verkefninu var að fá aparólu á Ásbrú og nú er sú ósk orðin að veruleika.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fyrirtækið Verne Global hefur stigið fram með rausnarlegu framlagi til samfélagsins og gefið nýja og glæsilega aparólu sem þegar hefur verið sett upp við leiksvæði á Ásbrú.

Gjöfin er í takt við verkefnið „Börnin að borðinu“, þar sem hlustað er á raddir barna og unnið í samvinnu við þau að bættri aðstöðu og leikrýmum.

Aparólan er bæði spennandi viðbót við leiksvæðið og skýr vísbending um að hugmyndir barna fái raunverulegt vægi í sveitarfélaginu.

„Reykjanesbær vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Verne Global fyrir þetta mikilvæga framlag. Slíkar gjafir styrkja ekki einungis aðstöðu barna heldur undirstrika einnig mikilvægi samvinnu við fyrirtæki sem leggja sig fram um að vera virkir samfélagsþegnar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Reykjanesbær fékk viðurkenningu UNICEF sem Barnvænt sveitarfélag í byrjun árs, og segir í tilkynningu bæjarins að verkefnið er enn ein sönnun þess að þegar hlustað er á börn og þau fá tækifæri til að hafa áhrif, þá skapast umhverfi þar sem þau geta þrifist og notið sín.

„Aparólan á Ásbrú er nú tákn um samstarf, þátttöku og trú á mikilvægi barna í samfélaginu,“ segir að endingu.