Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Mannlíf

Opnun tveggja  sýninga hjá Listasafni Reykjanesbæjar
Heimsmynd.
Þriðjudagur 2. september 2025 kl. 06:20

Opnun tveggja sýninga hjá Listasafni Reykjanesbæjar

Listasafn Reykjanesbæjar opnar tvær sýningar á Ljósanótt, fimmtudaginn 4. september kl. 18:00.

Listasafn Reykjanesbæjar býður gesti velkomna í Duus safnahús fimmtudaginn 4. september kl. 18:00 en þar opna fjórar nýjar sýningar.
 
Í Listasafni Reykjanesbæjar opna tvær sýningar: Hulduefni - Vilhjálmur Bergsson og Heimsmynd - Áki Guðni Gränz

Að auki opna sýningarnar Ásta málari í Bíósal og Endurfundir - Rut Ingólfsdóttir í Gryfjunni. 
Hulduefni

Í fremri sal opnar Hulduefni, einkasýning Vilhjálms Bergssonar (1937) frá Grindavík. Vilhjálmur er listamaður með ákveðna sýn og heildstætt ævistarf, þar sem hann var jafnan að vinna út frá því sem hann kallaði lífrænar víddir. Vilhjálmur stundaði nám í Handíða- og myndlistarskólanum frá 1951-1953. Haustið 1958 fór hann til Kaupmannahafnar og dvaldist næstu tvö árin við listnám og síðan var hann önnur tvö ár í París. Sýningarstjóri er Hanna Styrmisdóttir, sérfræðingur hjá Listasafni Reykjanesbæjar.  Myndverk sýningarinnar eru valin úr nýlegri gjöf listamannsins til Listasafns Reykjanesbæjar, elstu verkin eru frá sjötta áratug síðustu aldar, allt til dagsins í dag. Þannig er Hulduefni, yfirlitssýning valdra myndverka frá ferli Vilhjálms Bergssonar.   

Hulduefni.
Heimsmynd

Í gluggasal opnar Heimsmynd, einkasýning Áka Guðna Gränz (1925-2014). Sýningarstjóri er Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar. Myndverk sýningarinnar eru úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar, ásamt verkum í eigu fjölskyldu listamannsins. Áki hefði orðið 100 ára á þessu ári og mun sýningin heiðra minningu listamannsins með völdu yfirliti á verkum hans. Áki var afkastamikill listmálari, myndhöggvari og hannaði ýmiskonar merki og fána m.a. bæjarmerki Njarðvíkur og merki Kvenfélags Njarðvíkur, Iðnaðarmannafélags Suðurnesja og fleiri. Áki tók virkan þátt í sveitarstjórnarmálum, kjörinn í hreppsnefnd Njarðvíkur árið 1970, var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Njarðvík til 1986 og forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur 1982-1986. Hann sat í stjórn Ungmennafélags Njarðvíkur, var stofnfélagi í Lionsklúbbi Njarðvíkur og einn af stofnendum Sjálfstæðisfélags Njarðvíkur. Áki sat í undirbúningsnefnd stofnunar félags Keflavíkurverktaka og var bæði meðstofnandi og í stjórn félags málaraverktaka í Keflavík. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Heimsmynd.

Sýningarnar munu standa til 4. janúar 2026.

Ásta málari

Ásta Kristín Árnadóttir frá Narfakoti í Innri-Njarðvík var óhrædd við að brjóta gegn rótgrónum hefðum um samfélagslegt hlutverk kvenna. Hún lauk prófi í málaraiðn árið 1907 og var þar með fyrsta íslenska konan til að taka próf í iðngrein. Þremur árum síðar hlaut hún meistarabréf í iðninni, fyrst kvenna og Íslendinga.     

Ásta ruddi brautina fyrir konur. Hún bjó yfir óbilandi hugrekki og sjálfstrausti og lærði og starfaði víða um heim. Því er viðeigandi að gera sögu Ástu skil nú þegar hálf öld er liðin frá kvennaverkfallinu 1975. Árið 2025 hefur verið tileinkað baráttu fyrir jafnrétti og viðurkenningu á framlagi kvenna og kvár.

Sýningin opnar í Bíósal Duus safnahúsa fimmtudaginn 4. september kl. 18 og eru allir velkomnir. Sýningin stendur út nóvember.

Ásta málari.
Endurfundir - Rut Ingólfsdóttir

Eftir margra ára fjarveru og mikinn söknuð hafa litlar verur tekið þá ákvörðun að sigla alla leið frá Gúbbalandi til okkar hingað í Mannalandi. Þeir eru mjög spenntir fyrir þessum endurfundum og hlakka mikið til að hitta gamla og nýja vini. Sýning Rutar er í Gryfjunni og stendur yfir Ljósanótt.

Gúbbarnir.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25