ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Mannlíf

Nýr spjallbekkur hvetur til samtals í Skrúðgarðinum
Fimmtudagur 1. janúar 2026 kl. 10:15

Nýr spjallbekkur hvetur til samtals í Skrúðgarðinum

Kvenfélag Keflavíkur hefur fært Reykjanesbæ fallega gjöf, rauðan spjallbekk sem nú hefur verið settur upp í Skrúðgarðinum í Keflavík. Bekkurinn er hluti af verkefninu Vika einmanaleikans, sem haldin er í október og er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika. Markmiðið er að hvetja fólk til að rjúfa félagslega einangrun, efla tengsl og skapa tækifæri til samtals í nærumhverfinu.

Spjallbekkir eru tákn um hlýju og opnar dyr og minna á mikilvægi þess að staldra við, setjast niður og spjalla – hvort sem er við vini eða ný andlit. Með staðsetningu í hjarta Skrúðgarðsins verður til aðgengilegur samverustaður fyrir alla aldurshópa. Reykjanesbær þakkar Kvenfélagi Keflavíkur innilega fyrir gjöfina og þann samfélagsanda sem hún stendur fyrir.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk