Nýjar hlaupaleiðir og rásstaður í Ljósanæturhlaupinu
Ljósanæturhlaupið fer fram miðvikudaginn 3. september kl 18.30 en það er árlegur viðburður sem fram fer í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ og er í umsjón Vikars Sigurjónssonar og hlaupið er um götur Reykjanesbæjar.
Að þessu sinni verður rásmarkið hjá Stapalaug í Innri-Njarðvík. 500 kr. af hverri skráningu renna í MINNINGARSJÓÐ ÖLLA en hann styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað.
Hægt er að skoða kort af leiðunum á skráningarsíðu hlaupsins, á facebooksíðu „Vikar Sigurjónsson“ og við rásmark.
Keppt er í eftirtöldum vegalengdum: 3,5 km, 7 km og 10 km.
Flögu tímamæling verður notuð í Ljósanæturhlaupinu í öllum vegalengdum.
Ljósanæturhlaupið er tilvalið fyrir alla fjölskylduna og hægt að finna vegalengdir við allra hæfi.
Rásmark og endamark verða við Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbæ.
Búnings-og sturtuaðstaða er í Stapalaug, Reykjanesbær býður þátttakendum í sund að hlaupi loknu.
Dagskrá og tímasetningar:
Ræsing í 10 km kl. 18:30
Ræsing í 7 km fjarlægð kl. 18:35
Ræsing í 3,5 km kl. 18:40
Verðlaunaafhending verður um kl. 19:50
Verðlaun
Hlaupið er aldursflokkaskipt í 7 og 10 km. og eru verðlaun fyrir besta árangur í öllum flokkum í 7 km og 10 km. Í 3,5 km. eru veitt verðlaun fyrir 15 ára og yngri og 16 ára og eldri.
Glæsileg útdráttarverðlaun sem dregin verða úr nöfnum allra þátttakenda.
Þátttökugjald
3,5 km: 2.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 1.500 fyrir 14 ára og yngri.
7 km og 10 km: 3.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 2.000 fyrir 14 ára og yngri.
Athugið að skráningargjald hækkar um 1.000 fyrir alla flokka ef skráð er eftir kl 23.59 Mánudaginn 1. september.
Skráning.
Við hvetjum alla til að tryggja sér skráningu á:
netskraning.is ( http://netskraning.is/ ) til að forðast óþarfa streitu.
Afhending keppnisgagna hefst kl 17 á hlaupadegi.
Umsjón: Vikar Sigurjónsson sími 899-0501.