Kerfi, sýning á verkum Gunnhildar Þórðardóttur
Gallerí Göngum 4. desember – 30. janúar 2025
Sýningin Kerfi með verkum eftir Gunnhildi Þórðardóttur verður opnuð í Gallerí Göngum fimmtudag 4. desember nk. Kl. 17 en sýningin var áður til sýnis í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í ágúst og september á þessu ári. Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari og hefur verið virkur myndlistarmaður í 20 ár en að þessu tilefni er hún einnig að gefa út sjöundu ljóðabók sína, Vetrarmyrkur.
Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni Kerfi eru gerð úr endurunnum listaverkum á striga en einnig verða ný grafíkverk sem eru eins konar tilraunir með form.
Listin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem hreyfa við áhorfandanum með jafnvægi lita og forma eða meta fegurðina og einfaldleikann í að endurnota/uppvinna efni (skapandi endurvinnsla).
Meðan á opnunni stendur mun listamaðurinn lesa upp nýju ljóðabók sinni Vetrarmyrkur, lifandi tónlist, léttar veitingar og allir velkomnir.
Nánar um listamanninn:
Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari eins og áður sagði. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiplóma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið margar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.






