Kaffi og hland í Listasafni Reykjanesbæjar
Einkasýning Tuma Magnússonar, Héðan þangað þaðan hingað, opnar laugardaginn 17. janúar kl. 14:00 - 16:00, hjá Listasafni Reykjanesbæjar.
Tumi Magnússon (f. 1957) býr og starfar í Kaupmannahöfn og Reykjavík. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan.
Á sýningunni má sjá lykilverkið Kaffi og hland (1998–99), röð átta málverka sem sýna örfín litbrigði frá kaffibrúnum til pissuguls og fanga tímann sem kyrra, en um leið óstöðuga heild. Einnig eru sýnd nýrri vídeó- og hljóðverk á borð við Tímaréttingarlaglínur (2021–25) og Almenningssamgöngur (2020–25), þar sem einfaldar athafnir og ferðir eru samstilltar í taktfastar, tónrænar samsetningar.
Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í verkum Tuma. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun.
Gavin Morrison er sýningarstjóri en sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.





