Mannlíf

Jólaskreyttir gluggar í Stóru-Vogaskóla
Miðvikudagur 23. desember 2020 kl. 07:36

Jólaskreyttir gluggar í Stóru-Vogaskóla

Jólaundirbúningur í Stóru-Vogaskóla hefur ekki farið varhluta af því ástandi sem nú ríkir í samfélaginu. Þrátt fyrir það hefur verið reynt eftir fremsta megni að viðhalda þeim siðum og hefðum sem venjulega eru viðhafðar í skólastarfinu í aðdraganda jóla – en margt var öðruvísi en vanalega eins og gefur að skilja.

Föndurdagurinn var með örlítið breyttu sniði í ár. Þá flökkuðu nemendahópar ekki á milli ólíkra stöðva í skólanum eins og verið hefur undanfarin ár, heldur föndraði hver bekkur í sinni heimastofu. Jólafatadagurinn var á sínum stað en jólasöngsamverur á sal skólans voru ekki í ár. Jólatónleikum tónlistarskólans var streymt á Facebook-síðu skólans.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sú nýjung var í ár að gluggar skólans voru jólaskreyttir. Þá föndruðu bekkir myndir eða máluðu á glugga sinna heimastofa. Litlu jólin, en svo heitir lokaviðburður skólans fyrir jólafrí, verður á sínum stað með hátíðarbrag að vanda. Þá koma nemendur saman, spariklæddir, í sínum heimastofum. Nemendur koma með kerti og stöðugan kertastjaka að heima. Þegar kertin hafa verið tendruð er lesin jólasaga. Að lestri loknum skiptast nemendur á jólapökkum og gæða sér á góðgætinu sem þau koma með að heiman. Því næst verður dansað í kringum jólatréð en í ár munu einungis 1.–4. bekkur dansa og í tveimur hollum.