Mannlíf

Hálfrar aldar afmæli fagnað hjá SI raflögnum
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
mánudaginn 14. október 2019 kl. 17:38

Hálfrar aldar afmæli fagnað hjá SI raflögnum

SI raflagnir fagnar hálfrar aldar afmæli á þessu ári og buðu eigendur af því tilefni upp á kaffi og kökur í húsnæði fyrirtækisins í Garði á dögunum.

Sigurður Ingvarsson hefur rekið rafverkstæði í Garðinum í hálfa öld en Sigurður og starfsmenn hans hafa sinnt verkefnum á Suðurnesjum og út fyrir svæðið. Þrátt fyrir að vera orðinn næstum 78 ára gamall þá vinnur Sigurður ennþá fullan vinnudag. Rafverkstæðið byrjaði heima í bílskúr á Sunnubrautinni en fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og þá sérstaklega síðustu tvo áratugina.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Árið 2006 var fyrirtækinu breytt í SI raflagnir ehf. og komu þá dætur og tengdsynir inn í reksturinn og má því segja að SI raflagnir sé sannkallað fjölskyldufyrirtæki.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í afmælisveislunni í húsnæði fyrirtækisins að Iðngörðum 21 í Garði.

SI raflagnir 50 ára