Heklan
Heklan

Mannlíf

Guðni Th. Jóhannesson heimsótti Njarðvíkurskóla
Fimmtudagur 18. desember 2025 kl. 09:50

Guðni Th. Jóhannesson heimsótti Njarðvíkurskóla

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, heimsótti Njarðvíkurskóla í vikunni og átti þar samtal við nemendur í 8.–10. bekk. Heimsóknin var hátíðleg og gaf nemendum tækifæri til að hlýða á fróðlegt erindi um Guðna sjálfan og reynslu hans af forsetaembættinu, segir í frétt á vef skólans.

Áður en Guðni ávarpaði nemendur kynntu Viktoría Sól Sigurðardóttir og Karen Gígja Guðnadóttir æviágrip hans á vandaðan og greinargóðan hátt. Nemendur sýndu gestinum mikla virðingu og voru til fyrirmyndar í framkomu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Njarðvíkurskóli þakkar Viktoríu Sól og Kareni Gígju fyrir góða kynningu og Guðna Th. Jóhannessyni kærlega fyrir heimsóknina. Það var nemendum skólans mikill heiður að fá hann í heimsókn og eiga með honum samtal, segir jafnframt í fréttinni, sem má sjá hér ásamt fleiri myndum.

VF jól 25
VF jól 25