Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Guðmundur og Helena lesa í Sandgerði
Fimmtudagur 16. janúar 2020 kl. 07:02

Guðmundur og Helena lesa í Sandgerði

Listaverkefnið Skáldaskápur var formlega opnað laugardag 16. nóvember 2019 á Degi íslenskrar tungu en það er hugarfóstur listamannsins Gunnhildar Þórðardóttur.

Skáldaskápur er búinn að vera tvo mánuði í Bókasafni Reykjanesbæjar og hefur kynnt tvö ný skáld en mun núna fara á flakk til Sandgerðis. Janúaropnun Skáldaskáps verður í Bókasafni Sandgerðis nk. fimmtudag 16. Janúar kl. 17. Skáldaskápur kynnir tvö skáld til leiks Guðmund Magnússon úr Garðinum og Helenu Rós Bjarnveigardóttur frá Keflavík í janúar en þau munu lesa upp úr verkum sínum á opnuninni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Helena er 22 ára, fædd og uppalin í Keflavík og lauk stúdentprófi frá Verzlunarskólanum. Hún er nemandi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og spilar á píanó en tónlist er mikill partur af lífi hennar. Árið 2017 byrjaði hún að skrifa ljóð og texta sér til skemmtunar og hefur haldið áfram skifa mikið. Að hennar sögn skrifar hún til að róa hugann og það hjálpar henni að halda utan um hugsanir.

Guðmundur Magnússon er úr Garðinum eins og áður sagði en hann er menntaður kvikmyndagerðarmaður og gerir heimildamyndir fyrir sjónvarp. Hann er um þessar mundir að leggja drög að sinni fyrstu leiknu kvikmynd í fullri lengd sem ber heitið "Svartar fjaðrir" og er byggð á skrifum Elínborgar Lárusdóttur. Guðmundur hefur skrifað ljóð og smásögur frá unga aldri og fengið birtingar í tímaritum eins og Stínu. Fyrsta skáldsaga Guðmundar "Gegnum glerið dökka" kemur út á þessu ári.

Markmið Skáldaskáps er að hvetja íbúa Suðurnesja til þess að semja ljóð, smásögur, vísur, kvæði og efla skapandi skrif. Verkefnið er samfélagslegt þar sem allir íbúar óháð kyni, aldri, þjóðerni og tungumáli eru hvattir til þess að taka þátt. Verkin eru sýnd í sérstökum skáp frá Byggasafni Suðurnesja en það er hægt að fylgjast með viðburðum á facebook síðu Skáldaskáps https://www.facebook.com/Skaldaskapur-Poetry-Cupboard

og senda efni á [email protected].

Allir velkomnir og léttar veitingar.