Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Góð samskipti við kokkana eru fyrir öllu
Föstudagur 2. júní 2023 kl. 08:45

Góð samskipti við kokkana eru fyrir öllu

Nettó í Grindavík afgreiðir kost í nær 25 Grindavíkurbáta | Hressilegt spjall við þá Sebastian Rebisz, verslunarstjóra Nettó í Grindavík, og Magnús Arthúrsson, kokk á Sturlu GK 12 frá Grindavík.

„Við hjá Nettó í Grindavík afgreiðum kost í nær 25 Grindavíkurbáta og þessi samvinna hefur gengið afar vel. Öll stærstu útgerðarfélögin í Grindavík, eins og Vísir, Þorbjörn og Gjögur, eru í viðskiptum við okkur. Í þessari þjónustu skiptir vöruval og sveigjanleiki miklu máli og góð samskipti við kokkana eru jú fyrir öllu,“ segir Sebastian Rebisz, verslunarstjóri Nettó í Grindavík, þar sem hann tekur glaðbeittur á móti okkur ásamt Magnúsi Arthúrssyni, kokki á Sturlu GK 12 frá Grindavík; gamalreyndum sjómanni.

Það er stutt í brosið hjá þeim og ljóst að þarna fara ekki menn sem hittust fyrst í gær þrátt fyrir nokkurn aldursmun. Þeir kunna vel hvor á annan. Þannig er húmorinn á milli þeirra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

VINNAN Í NETTÓ REYNDIST GÓÐ KENNSLA Í ÍSLENSKU

Það vekur verulega athygli hvað Sebastian, sem er 28 ára, talar góða íslensku þótt hann sé alinn upp í Póllandi. Orðaforðinn er mikill og framburðurinn óvenju góður. Hann fluttist til Íslands frá Gdansk með foreldrum sínum árið 2006, þá 12 ára. Hann er í sambúð með Alexíu Ósk Sigurðardóttur frá Dalvík og eiga þau tvo stráka. „Það verður gifting á næsta ári,“ segir hann og brosir út í eitt.

Hann byrjaði að vinna á kassa í Nettó við Krossmóa í Keflavík árið 2012 og var svo færður til á milli nokkurra verslana er hann hóf störf í Nettó Grindavík árið 2020. Núna er hann vinsæll verslunarstjóri þar í bæ. Og takið eftir; hann þakkar meðal annars starfinu í Nettó sína góðu kunnáttu í íslensku.

„Ég byrjaði að læra íslensku í skólanum, eins og gengur, en mest hef ég lært í vinnunni hér í Nettó. Þegar ég var á kassanum talaði ég mikið við kúnnana á íslensku, var alveg óhræddur við að reyna það, og þeir svöruðu mér á íslensku. Ég fann fljótt að ég vildi búa hérna og fannst nauðsynlegt að geta talað íslensku.“

Sebastian fyrir framan grænmetið í Nettó en aukin áhersla er nú meðal sjómanna á hollustu í mataræði.

SVEIGJANLEIKI OG SAMVINNA

Að sögn Sebastians er mjög mikilvægt að bjóða upp á mikinn sveigjanleika í þjónustunni við bátana sem og þau fjölmörgu önnur fyrirtæki í Grindavík sem skipta við Nettó. „Við erum til taks allan sólarhringinn þegar kemur að bátunum og fyrirtækjunum. Við sveigjum okkur að þeirra þörfum, eins og komutíma bátanna í land. Geri til dæmis vont veður getur afhending breyst með nánast engum fyrirvara. Við mætum og opnum búðina hvernær sem er eftir hefðbundinn lokunartíma til að afgreiða kost í skipin, standi þannig á. Keflavík er okkar svæði líka þannig að leggi Grindavíkurbátarnir þar upp afgreiðum við kostinn þar.“

Sebastian segir að þjónustan við stóru viðskiptavinina felist ekki bara í sveigjanleikanum heldur einnig í meira vöruvali, séu óskir þar um. „Við sérpöntum fyrir stærstu viðskiptavinina til að koma sem best til móts við þá.“

ÉG ER KOKKUR AF GAMLA SKÓLANUM

En þá er það hlið kokksins í jöfnunni. Magnús, sem hefur verið til sjós í nær 45 ár, segist vera kokkur af gamla skólanum sem þó hugi mjög að hollustu matarins með auknum kröfum um heilsusamlegt fæði. Hann er jafnan þrjár vikur á sjó og tvær í landi.

Smá sætindi fá að fljóta með.

GAMLA, GÓÐA LAMBALÆRIÐ Á SUNNUDÖGUM

„Ég býð ævinlega upp á gamla, góða lamalærið á sunnudögum og saltfisk og grjónagraut í hádeginu á laugardögum. Þetta er hefð sem allir um borð eru sáttir við. Vissulega vill pítsukynslóðin oftar pítsur en maturinn þarf að vera fjölbreyttur og með árunum hefur stóraukin áhersla verið lögð á hollustu og við tökum þátt í heilsuátaki með Nettó.“

Magnús er kokkur sem vinnur líka á dekki og segir hann að það kalli á mikla skipulagningu í pöntunum. „Til að allt gangi upp geri ég nákvæman matseðil fram í tímann fyrir hvern einasta dag. Ég held að sumum kunni raunar að finnast nákvæmnin aðeins of mikil,“ segir hann og hlær.

NETIÐ EKKI NÓG – ÉG VIL HITTA STARFSFÓLKIÐ

Hann segir að netið sé svo sem gott og gilt en hann leggi áherslu á persónuleg samskipti við starfsfólk Nettó. „Mér finnst nauðsynlegt að koma í verslunina, hitta starfsfólkið, rabba við það – og velja vörurnar sjálfur. Hér fæ ég fína þjónustu og það er allt annað að vera í beinu sambandi við starfsfólkið. Það er bæði persónulegra og gerir þetta allt svo miklu skemmtilegra.“

En hvað þá um eldamennskuna þegar hann er í landi? „Það er allur gangur á því. Það vill nú svo til að eiginkonan, Björk Sverrisdóttir, er matreiðslumeistari og kennari á Ásbrú og því er ágæt samvinna hjá okkur í eldhúsinu heima – eins og vera ber,“ segir Magnús Arthúrsson, kokkur á Sturlu GK 12 frá Grindavík.

Mikael Bihac, Mikki, er sá starfsmaður Nettó í Grindavík sem tekur á móti pöntunum og afgreiðir kostinn til Grindavíkurbátanna. Hann er frá Bosníu, borginni Banjaluka, og hefur búið á Íslandi í 24 ár.