Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Eggjasuðutæki frá kærastanum
Miðvikudagur 22. desember 2021 kl. 07:13

Eggjasuðutæki frá kærastanum

Þóranna K. Jónsdóttir, nýráðin leiðtogi markaðsmála hjá BYKO segir jólin hjá henni snúast um samveru með sínum nánustu og hún nýtir netið til að kaupa sem flestar jólagjafir. Þá eru margar jólahefðir hjá fjölskyldunni í mat og fleiru. Jólagrauturinn er til dæmis lögbundinn.

Hvernig hagar þú jólagjafainnkaupum?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég vil helst geta verslað allt fyrir jólin sitjandi uppi í sófa í náttfötunum og með teppi við tölvuna. Netið er algjörlega málið. Ég reyni eins og ég get að beina öllum mínum viðskiptum til innlendra verslana enda mikilvægt að halda íslenskri verslun blómstrandi, ekki síst til að halda í dýrmæt störf og efla íslenskan efnahag. 

Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár?

Úff nei. Það er ekki síst þar sem maður er á haus að koma sér inn í nýtt starf. Svo er ég líka í dag með tvo unglinga sem breytir hlutunum töluvert. Áður settu krakkarnir pressu á að skreyta snemma en þetta er ekki jafn mikið mál fyrir þeim núna og það smitast um allt heimilið.

Skreytir þú heimilið mikið?

Ég hef síðustu jólin verið að minnka verulega og velja frekar færri hluti og fallegri. Þessi jólin er ég að fara í gegnum allt saman og henda fullt af dóti. Svo ætla ég að sjá hvað eftir stendur og hvort ég fæ mér eitthvað smá meira, en mig grunar að það sé nóg til nú þegar. Fjárfesti reyndar í fjórum Georg Jensen óróum í ár en ekki þessum klassísku gylltu heldur silfurlitum og einfaldari í hönnun (hjarta, bjalla, kúla og stjarna).

Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmáköku?

Nei. Ég hef verið sykur, glútein og gerlaus í mörg mörg ár og mjög mjólkurlítil. Á nokkrar góðar uppskriftir sem samræmast því en aftur, þetta árið hef ég ekki gefið mér tíma í það. Krakkarnir eru hinsvegar duglegir, sérstaklega 13 ára guttinn minn og gerir þá helst gúmmelaði súkkulaði smákökur - og svo er nú fínt að styrkja íslenskan efnahag og leyfa bara atvinnufólkinu að gera þetta og kaupa tilbúið deig í búðinni.

Eru fastar jólahefðir hjá þér?

Það eru nokkrar. Við fjölskyldan, við, foreldrar mínir, bróðir minn og fjölskyldan hans, förum alltaf út að borða saman kvöldmat á Þorláksmessu, sem er yndislegt. Á aðfangadag förum við til tengdaforelda minna í hádeginu. Þar er boðið upp á heitt hangikjöt með kartöflum og uppstúf, af því að það er jú svo penn kvöldverður framundan eða þannig. Svo er alltaf humar með djúsí rjómasósu í forrétt á aðfangadag. Þetta eru svona þessar helstu. Og spilakvöld - sem flest spilakvöld með fólkinu mínu. Elska þau!

Hvernig er aðventan - hefðir þar?

Frú Grinch hérna ha ha ha ... það eru helst jólaviðburðir í vinnunni en svo reyni ég meira að hafa kósý, kerti og afslappelsi. Nenni ekki að detta í jólastressið og hef staðið mig vel í því í ansi mörg ár núna. Eitt af fáu sem ég sakna er að fá mér jólaglögg sem er í miklu uppáhaldi, en er að reyna að finna útúr því að geta gert góða slíka án áfengis og sykurs. Get ekki sagt að Covid hafi sett neitt strik í reikninginn.

Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jólaminningu?

Veit sosum ekki hvort ég man eftir þeim per se, en hef séð myndir sem kveikja minningarbrot. Þau eru hjá ömmu og afa vestur á Ísafirði, í sparistofunni í bláum kjól með hvítu munstri sem mamma saumaði, stýri í afar stuttu ljósu hári (kom seint) og að hella upp á kaffi fyrir allt fólkið mitt í nýja kaffistellinu sem ég fékk í jólagjöf. Allar minningar frá ömmu og afa á Ísafirði eru sérstakar og í miklu uppáhaldi.

Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina?

Ég er ekki trúuð og fyrir mér snúast jólin ekki um það heldur notalegan tíma með fjölskyldu og vinum. Hef þessvegna ekki sótt messu um hátíðarnar, en efast ekki um að það er mjög falleg stund.

Eftirminnilegasta jólagjöfin?

Eggjasuðutæki frá kærastanum mínum og svo eiginmanni til 20 ára, fyrstu jólin okkar saman. Getur ímyndað þér hvað ég var glöð ha ha ha ... hélt að það væri bara gjöfin! Vissi ekki alveg hvað ég átti að segja þegar hann hringdi um kvöldið. Þá hafði hann unnið það í happdrætti á einhverju jólakvöldi og fannst hrikalega fyndið að gefa mér það. Hann kom svo seinna um kvöldið til mín með falleg nærföt í pakka. Þessi saga er mjög oft rifjuð upp í minni fjölskyldu og mikið hlegið.

Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf?

Hmmmm…. samverustundir með fjölskyldunni. Einhverja upplifun saman. Þarf ekki að vera merkilegt - saman er aðalmálið.

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat?

Humarinn í forrétt, eins og ég nefndi fyrr. Annars höfum við ekki fylgt hefðum mikið í þó nokkur ár. Ef við erum hjá mömmu og pabba eru þau almennt með kalkún, en þegar við sjáum um þetta sjálf þá förum við nú helst í Kjötkompaní og fáum þar eitthvað gúmmelaði og allt með. Þetta snýst ekki um að standa sveitt í eldhúsinu allan daginn heldur bara að njóta þess að borða góðan mat saman. Aftur látum við bara atvinnufólkið um málið. En svo er jólagrauturinn lögbundinn. Grjónagrautur, kældur og svo hrært út í hann þeyttum rjóma. Hitt fólkið er svo með súkkulaðisósu sem er Mars brætt í rjóma. Ég föndra mitt eigið sykurlausa súkkulaði - en annars finnst mér grauturinn bara hrikalega góður eintómur.