Blikandi Reykjanes með BIGS
Samsýning listamanna í Frystiklefanum í Svarta Pakkhúsinu sem eiga það sameiginlegt að kenna listir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sækja innblástur úr nærumhverfinu.
Bragi Einarsson vinnur í málun og mun sýna ný olíumálverk unnin í ár.
Íris Jónsdóttir vinnur einnig í málun og blandaðri tækni og sýnir ný verk unnin á striga.
Sólveig Sveinbjörnsdóttir vinnur tvívíð verk á silkipappír og sýnir ný akrýlverk og verður með leirmuni.
Gunnhildur Þórðardóttir vinnur með tví - og þrívíð verk unnin á síðustu árum.
Sýningin er opin fimmtudag 19-22, föstudag 16-21, laugardag 13-17 og sunnudag 13-16.
Léttar veitingar og allir velkomnir.