Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Bátafloti Gríms Karlssonar  kominn á vefinn
Fimmtudagur 19. nóvember 2020 kl. 13:23

Bátafloti Gríms Karlssonar kominn á vefinn

Í eigu Byggðasafnsins eru nærri 140 bátalíkön sem flest voru smíðuð af Grími Karlssyni, skipstjóra. Þessa vikurnar stendur yfir vinna við uppsetningu á nýrri sýningu á bátalíkönunum og var tækifærið notað til að mynda hvert og eitt líkan og byggja upp vef um bátaflota Gríms Karlssonar. Vefurinn hefur nú verið opnaður á vefsvæði Byggðasafnsins og gefst áhugasömum kostur á að skoða þau bátalíkön sem Grímur smíðaði og eru í eigu Byggðasafnsins. Hverju líkani fylgir saga bátsins með vönduðum myndum af hverju líkani.

Grímur smíðaði þó talsvert fleiri líkön en gefur að líta á vefnum, bátalíkön sem eru í eigu annarra safna, fyrirtækja og einstaklinga. Byggðasafnið óskar því eftir upplýsingum og myndum af bátalíkönum sem eru í eigu annarra með það að markmiði að í framtíðinni verði hægt að sjá hér heildaryfirlit yfir allan bátaflota Gríms Karlssonar.

Public deli
Public deli