Mannlíf

Afbygging stóriðjunnar í Helguvík
Föstudagur 23. febrúar 2024 kl. 08:29

Afbygging stóriðjunnar í Helguvík

Listamannateymið Libia Castro & Ólafur Ólafsson opna sýninguna, Afbygging stóriðjunnar í Helguvík, laugardaginn 24. febrúar 2024. Afbygging stóriðjunnar í Helguvík, sem er verk í vinnslu og unnið í samstarfi og samtali Libiu & Ólafs við Töfrateymið, Andstæðinga stóriðjunnar í Helguvík, aðra umhverfisverndarsinna, hagfræðing, íbúa Reykjanesbæjar og nærsamfélaga og sýningarstjórann Jonatan Habib Engqvist.

Þó ekki sé um formlega opnun að ræða þann 24. febrúar, verða léttar veitingar í boði. Opnunarhóf verður síðan haldið laugardaginn 9. mars kl. 14:00.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Afbygging stóriðjunnar í Helguvík er verk í vinnslu, við mælum með því að fólk komi oftar en einu sinni á sýningartímanum og taki þátt í samtalinu. Sýningin er styrkt af Safnasjóði. Listamennirnir eru styrktir af Myndlistarsjóði og Myndstef. Afbygging stóriðjunnar í Helguvík stendur til sunnudagsins 28. apríl 2024.

Libia Castro & Ólafur Ólafsson hófu samstarf sitt í Hollandi árið 1997. Þau vinna þverfagleg samvinnuverkefni; með vídeó, ljósmyndun, hljóðskúlptúr og margmiðlunar innsetningar. Libia & Ólafur fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn árið 2011. Þau hafa sýnt verk sín í almannarýmum í ólíkum borgum víða um Evrópu og haldið einkasýningar um heim allan.

Jonatan Habib Engqvist er alþjóðlegur sýningarstjóri og höfundur. Frá 2021 hefur hann starfað sem ritstjóri Ord&Bild.