Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Kyle Williams er nýr leikmaður Njarðvíkinga
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 28. október 2019 kl. 14:20

Kyle Williams er nýr leikmaður Njarðvíkinga

– Mætir á sína fyrstu æfingu í kvöld

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við Kyle Steven Williams, 193 cm háan leikmann sem getur leikið nokkrar stöður á vellinum. Kyle er kominn til starfa og mun mæta á sína fyrstu æfingu með Njarðvíkurliðinu í kvöld.

Einar Árni Jóhannsson þjálfari segir að hér fari fjölhæfur bakvörður: „Kyle lék á Englandi á síðustu leiktíð þar sem hann var með rúm þrettán stig að meðaltali í leik. Við bindum miklar vonir við að Kyle verði öflugur liðsmaður í að koma okkur aftur á rétt ról í Domino’s-deildinni.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024