Íþróttir

Andri Steinn inn í þjálfarateymi Þróttar
Andri verður annar tveggja aðalþjálfara Þróttar Vogum.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 15. mars 2023 kl. 12:11

Andri Steinn inn í þjálfarateymi Þróttar

Knattspyrnudeild Þróttar Vogum hefur samið við  Andra Stein Birgisson um að koma inn í þjálfarateymið. Andri og Brynjar Gestsson verða aðalþjálfarar liðsins.

Andri Steinn er mörgum knattspyrnuáhugamönnum kunnur en hann á fjölda leikja í efstu deild. Hann lék með Fram, Grindavík, Keflavík, Leikni, Haukum og Fjölni á sínum ferli. Hann var þjálfari Þróttar Vogum er liðið tryggði sig upp um deild í fyrsta sinn í sögu félagsins árið 2015. Andri var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val 2018. Síðustu ár hefur Andri verið í þjálfarateymi Kórdrengja.

„Ég þekki auðvitað vel til hjá Þrótti og þetta var auðveld ákvörðun að taka þegar Binni hafði samband. Þarna hóf ég minn þjálfaraferil á sínum tíma og leið ákaflega vel. Við stefnum á toppbaráttu, Mikilvægasta vinnan verður að byggja upp gott lið fær að vaxa og dafna saman til næstu ára. Þróttur Vogum skiptir miklu máli fyrir samfélagið í Vogum og við þurfum að fá bæjarbúa með okkur í verkefnið, Við ætlum okkur að standa okkur fyrir Voga.“ sagði Andri Steinn í gærkvöldi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Þetta er gríðarlegur styrkur fyrir félagið. Hann þekkir vel til hjá okkur og hefur verið í góðu sambandi alla tíð frá því hann þjálfaði liðið. Andri hefur verið stór partur í árangri Kórdrengja síðustu ár." sagði Marteinn Ægisson hjá Þrótti Vogum.