Fréttir

Yfir 200 manns atvinnulausir í 30 mánuði
Föstudagur 9. apríl 2021 kl. 06:30

Yfir 200 manns atvinnulausir í 30 mánuði

„Þurfum að taka höndum saman og vinna þetta í sameiningu,“ sagði Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks.

„Í ljósi þessa mikla atvinnuleysis hér á svæðinu er mjög mikilvægt að bregðast áfram við því eftir því sem við best getum. Það eru rúmlega 200 manns að fullnýta sinn bótarétt á árinu hjá VMST sem eru 30 mánuðir og ég hugsa til þessa fólks með tilliti til framfærslu. Mun það leita til sveitarfélagsins og fá þá helmingi lægri framfærslu. Ég get ekki ímyndað mér hvernig fólki líður eftir svona langtímaatvinnuleysi,“ sagði Díana Hilmarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vikunni.

Díana segir að hluti af þessu fólki sé að velkjast um í röngu kerfi og skoða þurfi betur hvar þessir einstaklingar séu staddir andlega, félagslega og fjárhagslega og vinna út frá því. „Mér finnst ótrúlegt ef einstaklingur sem hefur verið án atvinnu og mögulega óvirkur í 30 mánuði sé í stakk búinn að fara beint í 100% atvinnu. Stjórnvöld hafa farið af stað með verkefnið „Hefjum störf“ sem er fyrir einstaklinga sem búa við langtímaatvinnuleysi og markmiðið er að skapa 7.000 störf um land allt.“

Public deli
Public deli

Í máli hennar kom fram að námsmanna-úrræði væru aftur á dagskrá með styrk frá stjórnvöldum eins og var gert í fyrra. Þau væru mikilvæg og nauðsynleg.

„Eins og ég hef nefnt áður þá er formúlan til, við höfum gert þetta, nýtum okkur reynsluna síðan í fyrra. Ég efast ekki um að námsmenn eru orðnir óþreyjufullir eftir svörum hvort þeir fái starf í sumar. Ég get talað fyrir mig sem forstöðumaður einingar innan bæjarins að ég get klárlega nýtt mér bæði námsmannaúrræði sem og Hefjum störf. Við þurfum að taka höndum saman og vinna þetta í sameiningu. Ég hvet atvinnurekendur til að kynna sér þetta og sjá hvort þeir geti ekki tekið þátt í atvinnuuppbyggingu hér á svæðinu okkar með því að nýta sér þessi úrræði,“ sagði Díana.