Fréttir

Vilt þú sækja um styrk í spennandi menningarverkefni?
Þriðjudagur 24. janúar 2023 kl. 16:49

Vilt þú sækja um styrk í spennandi menningarverkefni?

Menningarsjóður Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum en um tvenns konar styrki. Annars vegar er um að ræða þjónustusamninga við menningarhópa og hins vegar verkefnastyrki til menningartengdra verkefna.
Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða, s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.
Ákveðnu fjármagni verður einnig varið í ýmis menningartengd verkefni á árinu 2023 sem miða að því að efla menningarlíf í Reykjanesbæ með fjölbreyttum hætti. Í umsókn þarf að koma fram greinargóð lýsing á verkefni og kostnaðaráætlun. Einstaklingar, hópar eða félagasamtök geta sótt um.
Umsóknum þarf að skila rafrænt í síðasta lagi 19. febrúar nk. í gegnum Mitt Reykjanes.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Reykjanesbæjar. 

Public deli
Public deli