Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Viljayfirlýsing um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku
Frá vinstri: Arnþór Gústavsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Sæbýli, Ásgeir Guðnason, stofnandi og framkvæmdastjóri Sæbýlis, Sigurður Pétursson, stjórnarformaður Sæbýlis, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, og Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og Auðlindagarðs hjá HS Orku.
Laugardagur 19. nóvember 2022 kl. 16:36

Viljayfirlýsing um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku

HS Orka og Sæbýli rekstur ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku. Sæbýli hefur á þessu ári verið að byggja upp ungviðaeldisstöð í Grindavík sem byggir hlýsjávareldi sitt á jarðvarma og grænni orku frá virkjun HS Orku við Svartsengi.

Sæbýli er eldisfyrirtæki sem hefur á síðastliðnum fimmtán árum þróað eigin klakstofn, tækni og framleiðsluaðferð við eldi á sæeyrum á Íslandi. Uppsetning eldisins er einstök á heimsvísu og sú fyrsta sinnar tegundar en hún byggir á lóðréttu hillukerfi og vatnsendurnýtingu. Sæeyru sem á ensku kallast „abalone“ eru í raun sæsniglar og ein verðmætasta eldistegund í heimi sem með nýtingu einstakra auðlinda á Íslandi er mögulegt að rækta með hlýsjávareldi hér á landi.

Public deli
Public deli

Fyrirtækið hefur undanfarið rekið klakstöð í Grindavík til að rækta upp ungviði en hyggst byggja upp áframeldi í Auðlindagarðinum þar sem það hyggst nýta græna raforku og varma á Reykjanesi. Áform Sæbýlis eru í fyrstu að byggja upp 200 tonna eldi sem svo er mögulegt að fimmfalda á næstu tíu árum. Sæeyrnastofninn sem ræktaður er má rekja til Japans en í Asíu er þessi skelfiskur eftirsótt matvæli og hefur Sæbýli í hyggju að flytja vöruna á erlenda markaði. 

Sigurður Pétursson, stjórnarformaður Sæbýlis: „Einstakar náttúruauðlindir á Íslandi, með jarðvarma, hreinum borholusjó og grænni raforku, gera Sæbýli, í samvinnu við HS Orku, mögulegt að þróa umhverfisvænt skelræktarverkefni. Bæði félögin leggja áherslu á umhverfisvænt hringrásarkerfi og erum við því mjög ánægð hjá Sæbýli að ná þessum áfanga í uppbyggingu félagsins.“

Ásgeir Guðnason, stofnandi og framkvæmdastjóri Sæbýlis: „Ýmsir velta fyrir sér hvort það taki mörg ár að hefja eldi á nýrri eldistegund og einfalda svarið er: „Já!“ Grunnurinn snýr að byggja upp klakstofn og við höfum náð þeim áfanga og lögðum því í það verkefni á árinu að byggja ungviðaeldisstöð í Grindavík. Þessi viljayfirlýsing með HS Orku tekur okkur fleiri skref áfram í því markmiði að byggja upp einstakt eldi á verðmætustu eldistegund í heimi hér á Íslandi.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku: „Við erum afar spennt fyrir þessu samstarfi við Sæbýli. Þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu við uppbyggingu á eldisrekstri og við teljum þetta verkefni vera góða viðbót við þá flóru eldisfyrirtækja sem eru að byggjast upp í Auðlindagarðinum. Framleiðsla á sæeyrum fellur vel að hugmyndafræði Auðlindagarðsins, nýtir bæði grænt rafmagn og varma við framleiðsluna, ekki síst lítum við jákvæðum augum á þá möguleika sem sæeyrnaeldið opnar á fyrir möguleg frekari samlegðaráhrif eldisfyrirtækja á svæðinu.“