Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Veikir flugfarþegar og slys
Þessi þota Air France var á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Ekki fylgir sögunni hvert erindi hennar var. VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 2. október 2019 kl. 09:06

Veikir flugfarþegar og slys

Tveimur flugvélum var lent á Keflavíkurflugvelli um og eftir helgina vegna veikinda farþega um borð. Báðir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Þá slasaðist farþegi þegar hann var að ganga frá borði flugvélar sem hafði skömmu áður komið frá Hamborg í Þýskalandi. Viðkomandi farþegi féll til jarðar með þeim afleiðingum að hann hlaut stóran og djúpan skurð á hnakka. Hann kvartaði einnig undan eymslum víðsvegar um líkamann. Viðkomandi var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024