Fréttir

Veðurstofan telur verulegar líkur á gosi á næstu dögum eða vikum
Fyrsta ljósmyndin sem birtist af gosinu við Fagradalsfjall á síðasta ári. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 2. ágúst 2022 kl. 18:09

Veðurstofan telur verulegar líkur á gosi á næstu dögum eða vikum

Niðurstöður aflögunarlíkana sem gerð voru í dag benda til að kvikugangurinn undir Fagradalsfjalli liggi mjög grunnt, eða í kringum 1 km undir yfirborðinu. Kvikuinnflæðið er nokkuð ört en það er nálægt tvöfaldur hraði frá því sem var í aðdraganda fyrra goss í febrúar/mars 2021. Það virðist vera að hægja á aflögun og skjálftavirkni eins og staðan er núna en á seinasta ári var það einn af forboðunum fyrir eldgosið. Innskotið nú er meðfram nyrðri huta kvikugangsins frá í fyrra og nær frá miðju gangsins hálfa leið að Keili. Líkurnar á því að það gjósi á svæðinu í kringum Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum hafa því aukist og eru taldar verulegar.


Af gefnu tilefni þá eru hér upplýsingar um viðbrögð og viðbúnað vegna jarðskjálfta. Allar þessar upplýsingar eru á heimasíðu Almannavarna.

Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan brotnar eða hrekkur til á gömlum brotaflötum. Þeir gera sjaldnast boð á undan sér. Því er nauðsynlegt að gera öryggisráðstafanir fyrirfram og læra rétt viðbrögð. Veðurstofan vaktar jarðskjálfta á Íslandi með neti mælitækja um allt land og vinnur að rannsóknum með það að markmiði að auka þekkingu á eðli og umfangi jarðskjálfta.
Þegar jarðskjálfti verður, þá er gott að vera búin(n) að huga að hvernig best sé að bregðast við.
Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að halda ró sinni, krjúpa, skýla höfði og halda sér. Mörg slys í kjölfar jarðskjálfta verða þegar fólk hleypur um eða út úr byggingum. Ef hlaupið er um í óðagoti aukast líkurnar á því að verða fyrir hlutum sem falla úr hillum eða af veggjum og þess háttar og oft er erfitt að halda jafnvægi. Glerbrot geta verið á gólfum ásamt ótal muna sem geta valdið slysi ef stigið er ógætilega á þá og svona mætti lengi telja.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Mikilvægt er að íbúar á þekktum jarðskjálftasvæðum geri ráðstafanir til að draga úr tjóni vegna jarðskjálfta. Það er hægt að gera á ýmsan hátt.

  • Húsgögn
    Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg.
  • Lausir munir og skrautmunir
    Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Hægt er að nota kennarartyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta. Þungur borðbúnaður og hlutir eru best geymdir  í neðri skápum, helst lokuðum.
  • Kynditæki og ofnar
    Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festið hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.
  • Myndir, ljósakrónur
    Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkju.
  • Skápahurðir
    Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim.
  • Svefnstaðir
    Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi.
    Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum.
    Byrgið fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.
  • Tryggingar
    Bætur Náttúruhamfaratryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar, sem eru skyldutryggingar. Mikilvægt er að innbústryggingar sem eru frjálsar tryggingar, séu sem næst raunverulegu verðmæti innbús svo tjón fáist að fullu bætt.
  • Símar
    Farsímar duga skammt ef rafmagn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið eða hleðslubanka til að hlaða farsíma. Sendu SMS til þinna nánustu í stað þess að hringja (sérstaklega eftir stóran jarðskjálfta) til að minnka álag á símkerfi í hamförum.

Mörgum finnst jarðskjálftar óþægilegir og í hrinu eins og þessari þarf að takast á við marga óvissuþætti. Því er mikilvægt að gera það sem hægt er til að draga úr vanlíðan, hlúa hvert að öðru og aðstoða þau sem síður eru í stakk búin að takast á við þessar aðstæður. Við minnum á Hjálparsímann 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Hjálparsíminn er alltaf opinn, trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis.
Á heimasíðu Almannavarna er hægt að kynna sér allt um viðbrögð, varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta.