Brons
Brons

Fréttir

Stapaskóli fékk viðurkenningu fyrir skólastarf
Sunnudagur 19. október 2025 kl. 12:58

Stapaskóli fékk viðurkenningu fyrir skólastarf

Stapaskóli hlaut viðurkenningu fyrir eTwinning verkefni ársins 2025 á Íslandi fyrir verkefnið Ink of Unity – Celebrating our True Colors. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, afhenti verðlaun Erasmus+ fyrir framúrskarandi skólastarf og fyrir nýsköpun í tungumálakennslu á Nauthóli í vikunni.

Verkefnið var unnið í samstarfi við skóla víða um Evrópu og sneri að því að efla skapandi tjáningu, samvinnu og gagnkvæma virðingu meðal nemenda með sameiginlegum listrænum verkefnum. Ink of Unity fangar kjarnann í eTwinning – að efla alþjóðavitund, fjölmenningu og samskiptahæfni ungs fólks og í þessu tilviki er þetta gert í gegnum list og tungumál.

Auk þess hlutu kennarar frá Stapaskóla, Selásskóla, Ingunnarskóla og Stóru-Vogaskóla gæðaviðurkenningar eTwinning fyrir vel unnin verkefni sem sýna fram á fagmennsku, frumkvæði og árangursríka notkun á eTwinning til alþjóðlegs samstarfs og skapandi náms. „Það er ánægjulegt að sjá þann mikla sköpunarkraft sem býr innan skólakerfisins. Ég óska verðlaunahöfum til hamingju með þessa viðurkenningu á mikilvægu framlagi til skólastarfs á Íslandi, framlag sem er til eftirbreytni,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25