Fréttir

Sumarsýningar opna í Duus Safnahúsum
Föstudagur 11. júní 2021 kl. 06:51

Sumarsýningar opna í Duus Safnahúsum

Næstkomandi laugardag, 12. júní klukkan 13, verður mikið um dýrðir í Duus Safnahúsum þegar Listasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar opna sumarsýningar sínar og eru bæjarbúar boðnir velkomnir að líta við og taka þátt í þessum viðburði.

Steingrímur Eyfjörð í Listasafninu

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Listasafn Reykjanesbæjar opnar stóra einkasýningu á verkum eftir Steingrím Eyfjörð (f. 1954) sem eru sambland eldri og nýrri verka og ber sýningin yfirskriftina Tegundagreining. Sýningin er tilraun listamannsins til að skýra kveikjuna að myndsköpuninni. Steingrímur hefur verið virkur myndlistarmaður frá áttunda áratug síðustu aldar og í verkum sínum hefur hann unnið með fjölbreytta miðla, margvíslegt efnisval og ólík viðfangsefni. Steingrímur hefur haldið fjölmargar einkasýningar síðan 1977, ásamt því að vera valinn til þess að taka þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Þar má meðal annars nefna viðamikla sýningu á verkum hans í Listasafni Íslands árið 2006. Steingrímur var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2007. Árið 2017 var hann sæmdur titlinum bæjarlistamaður Hafnarfjarðar. Steingrímur hlaut Menningarverðlaun DV fyrir myndlist árið 2002 og var tilnefndur til Carnegie Art Award árin 2004 og 2006.

Saga Kaupfélags Suðurnesja

Í tilefni 75 ára afmælis Kaupfélags Suðurnesja verður opnuð sýning í Stofunni í Duus Safnahúsum þann 12. júní kl. 13 í samvinnu Byggðasafns Reykjanesbæjar og Kaupfélagsins. Hluti sýningarinnar verður staðsettur utandyra gegnt Duus Safnahúsum. Sýningin samanstendur af ljósmyndum og munum úr sögu Kaupfélagsins.

Sýning Listasafnsins stendur til 22. ágúst en sýning Byggðasafnsins stendur lengur. Ókeypis er í Duus Safnahús í sumar og því um að gera að  leggja leið sína þangað með gesti og gangandi.