Suðurnesin í sviðsljósinu: „Það skiptir allt Ísland máli að vel takist til“
„Suðurnesin eru eitt öflugasta vaxtarsvæði landsins og tækifærin eru gífurlega mörg. Það er heiður að fá að taka þátt í að móta framtíð svæðisins, og það var dýrmætt að ná saman á einn stað öllu þessu fólki sem ber hag Suðurnesja fyrir brjósti,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastóri Kadeco en í gær fór fram ráðstefnan „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“ í Hljómahöll í Reykjanesbæ.
Kadeco stóð að ráðstefnunni í samstarfi við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Markmiðið var að beina sjónum að tækifærunum á Suðurnesjum og hlutverki svæðisins sem drifkrafts vaxtar fyrir landið allt.
Ræðumenn á fundinum voru Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, Mark O’Connell, stofnandi og stjórnarformaður alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins OCO Global, Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. Í pallborði sátu Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Páll Erland, forstjóri HS Veitna, Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, Styrmir Hafliðason, forstjóri Verne og alþingismaðurinn Halla Hrund Logadóttir.
Bergur Ebbi stýrði ráðstefnunni og pallborði og var honum tíðrætt um kraftinn og sköpunargleðina á svæðinu öllu. Gríðar miklar framkvæmdir eru í gangi eða eru framundan hjá Verne, Samherja og Bláa Lóninu.
Tækifærin á Suðurnesjum voru rauður þráður í máli ræðumanna. Erindi og umræður endurspegluðu trú á svæðinu sem drifkrafti vaxtar fyrir Ísland allt. Fram kom meðal annars að skýr framtíðarsýn og öflug samvinna skipti sköpum fyrir áframhaldandi vöxt og að hann ætti að skila sér í betra samfélagi fyrir öll.
„Tuttugu ár eru liðin frá stofnun Kadeco og á slíkum tímamótum er tilefni til að staldra við og líta yfir það sem áunnist hefur, en líka það sem er framundan,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.
„Verkefnið nú er að fjölga góðum störfum, efla menntun og sjá til þess að vöxturinn skili sér í betra samfélagi fyrir fólkið sem hér býr. Við erum með stór tækifæri í höndunum og saman mun okkur ganga enn betur að draga þau til okkar. Það skiptir allt Ísland máli að vel takist til á Suðurnesjunum.“
Mark O’Connell var bjartsýnn á framtíð Íslands og þá möguleika sem Suðurnesin hafa til að laða að erlenda fjárfestingu. Hann fjallaði um þá strauma sem hægt hafa á erlendri fjárfestingu í Evrópu, svo sem óvissu, lítinn hagvöxt, tolla og flókið regluverk, og um það hvernig Ísland og Suðurnesin geta snúið þeirri þróun sér í hag. Að hans mati er mikilvægt að greina tækifærin fyrir erlendar fjárfestingar og sækja fram til að efla enn frekar þetta frábæra svæði. Til þess að laða að fjárfestingu þurfi fyrst og fremst að selja vörumerkið Ísland.
„Það eru mikil og enn ónýtt tækifæri á Suðurnesjum. Innviðirnir eru þegar til staðar og svæðið sker sig úr þegar kemur að aðgengi að grænni orku, nálægð við stórskipahöfn og alþjóðaflugvöll. Til viðbótar við þessa styrkleika hefur K64 þróunaráætlunin mótað bæði skýra framtíðarsýn og umboð til að nýta þessi tækifæri. Á sama tíma sjáum við að breytingar á alþjóðavettvangi hafa gert fjárfesta varkárari og hægari í ákvarðanatöku en áður. Þau svæði sem geta sett fram skýrt virðistilboð sem höfðar til fjárfesta munu því hafa forskot. Suðurnesin hafa alla burði til að skara fram úr og stuðla að vexti á Íslandi öllu. Það sem þarf er að koma skilaboðunum á framfæri af meiri krafti og með skýrari hætti til réttra markhópa,“ segir Mark O’Connell.

„Tuttugu ár eru liðin frá stofnun Kadeco og á slíkum tímamótum er tilefni til að staldra við og líta yfir það sem áunnist hefur, en líka það sem er framundan,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Mark O’Connell var bjartsýnn á framtíð Íslands og þá möguleika sem Suðurnesin hafa til að laða að erlenda fjárfestingu.

Í pallborði sátu Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Páll Erland, forstjóri HS Veitna, Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis, Styrmir Hafliðason, forstjóri Verne og alþingismaðurinn Halla Hrund Logadóttir.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, leiðir samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll. Félagið hefur leitt vinnu við K64, sem er heildstæð efnahags- og skipulagsleg þróunaráætlun fyrir svæðið. Kadeco var stofnað í október 2006 og hafði umsjón með og seldi þær eignir sem Bandaríkin afhentu Íslandi við brottför varnarliðsins.







