Fréttir

Stórfellt brottkast náðist á drónaupptöku
Bátar við bryggju. VF-mynd: Hilmar Bragi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 19. júlí 2021 kl. 12:24

Stórfellt brottkast náðist á drónaupptöku

Fiskistofa svipti bátinn Bergvík GK 22 veiðileyfi í tvær vikur fyrr í mánuðinum vegna stórfellds brottkasts þar sem hið minnsta 72 bolfiskum, aðallega þorski, var kastað fyrir borð.

Fiskistofa hefur notast við dróna við eftirlit á fiskislóðum, bæði nær landi sem og á togaraslóðum. Þetta er fyrsta tilfelli þar sem bátur er sviptur leyfi vegna brottkasts eftir drónaeftirlit en fyrstu málin er varða brottkast á togurum eru að koma inn á borð Fiskistofu er haft eftir Elínu Björgu Ragnarsdóttur, sviðsstjóra veiðieftirlits Fiskistofu, á vef Vísis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fiskistofa varð vör umrætt brottkast við eftirlit þann 28. apríl síðastliðinn. Notast hafi verið við dróna með áfastri myndavél við eftirlitið og upptökubúnaður virkjaður eftir að eftirlitsmenn urðu varir við brottkast áhafnar. Jafnframt er haft eftir Elínu að stofnunin meti brottkastið í umræddu tilfelli stórfellt og ekki hafi verið hægt að gríða til vægari aðgerðar en sviptingar.

Fiskistofa metur svo að óþægilega mikið sé um brottkast og hefur stofnunin óskað eftir samstarfi við fyrirtæki í sjávarútvegi til að berjast gegn slíkri umgengni við auðlindina.

„Því við verðum að hafa það í huga að brottkast skaðar hagsmuni allra sem hafa hag af þessari ábyrgu nýtingu auðlindarinnar og þess vegna er samstaða um að þessi hegðun verði ekki liðin. hún er lykillinn að því að vernda þessa hagsmuni,“ segir Elín Björg Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits hjá Fiskistofu, að lokum.

Það er visir.is sem greindi frá: