Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Startup Landið – haldið í fyrsta sinn
Fimmtudagur 3. júlí 2025 kl. 11:09

Startup Landið – haldið í fyrsta sinn

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn Startup Landið fyrir nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðunum. Hraðallinn hefst 18. september og lýkur með lokaviðburðum 30. október þar sem þátttakendur kynna verkefni sín.

Startup Landið veitir þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun. Markmiðið er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna sem eru komin af hugmyndastigi, hvort sem þau eru unnin af einstaklingum, sprota verkefni eða innan rótgróinna fyrirtækja.

Hvað býður hraðallinn upp á?

Bílakjarninn
Bílakjarninn
  • Aðgangur að reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum og fjárfestum
  • Vinnustofur og fræðslufundir
  • Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet
  • Tvær bundnar vinnustofur með stað allra teyma
  • Mestu leyti rafrænt fyrirkomulag sem hentar þátttakendum um allt land

Hverjir geta sótt um?

Leitast er eftir frumkvöðlum, sprota frumkvöðlum og nýsköpunarverkefnum landsbyggðar sem eru komin af hugmyndastigi og vilja þróa verkefni sitt áfram með stuðningi sérfræðiþekkingar og tengslanets.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst . Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má finna hér.

Startup Landið er samstarfsverkefni allra landshlutasamtakanna: SSNE, SSNV, Vestfjarðarstofu, Austurbrúar, SASS, SSS og SSV.

Frekari upplýsingar veitir Dagný Maggýjar verkefnastjóri Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum [email protected]. Sjá nánar á startuplandid.is