Stærri og þægilegri Krónuverslun opnar við Fitjabraut
„Gríðarleg tækifæri til framtíðar á Suðurnesjum,“ segir framkvæmdastjóri Krónunnar
„Við sjáum gríðarleg tækifæri til framtíðar hér á Suðurnesjum og erum afar þakklát fyrir það traust sem íbúar svæðisins hafa sýnt okkur í gegnum árin. Við höfum fengið ótrúlega góðar móttökur bæði í verslun okkar og einnig hvað varðar heimsendingarþjónustuna okkar. Nú getum við, með stærri og þægilegri verslun, veitt enn hraðari, skilvirkari og betri þjónustu. Við leggjum jafnframt áherslu á ferskleika, hagstætt verð og fjölbreytt vöruúrval – og hlökkum mikið til að bjóða íbúa Suðurnesja velkomna í nýju verslunina okkar,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Ný og glæsileg matvöruverslun Krónunnar opnar laugardaginn 23. ágúst kl 8.00 í nýju verslunarhúsnæði við Fitjabraut 5 í Njarðvík. Verslunarrýmið telur 2.355 fermetra og er með stærstu verslunum Krónunnar. Verslunin við Fitjabraut tekur við af minni verslun Krónunnar Fitjum sem hefur þjónað íbúum Suðurnesja síðan 2015.
Opnunartími verslunarinnar verður frá 8 til 21 alla daga vikunnar.
Spennt að flytja í nýtt húsnæði

Jón Þór Kristinsson, verslunarstjóri Krónunnar við Fitjabraut er spenntur að flytja í nýtt húsnæði þar sem hið gamla var fyrir löngu orðið of lítið.
„Okkur hefur lengi dreymt um að komast í stærra húsnæði til að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur en munum auðvitað sakna verslunarinnar á Fitjum,“ segir Jón Þór. „Viðskiptavinir okkar hafa beðið spenntir eftir opnun og nú er loks hægt að bjóða þá velkomna hingað við Fitjabraut. Síðustu daga hefur starfsfólk okkar unnið hörðum höndum að því að gera matarinnkaupin sem ánægjulegust og hlökkum við til að einfalda líf okkar viðskiptavina enn meira en áður í eina stærstu og glæsilegustu matvöruverslun Suðurnesja.“
Ferskleiki í fyrirrúmi
Að sögn Jóns Þórs verður mikil áhersla lögð á að hafa ferskvöru áberandi innan verslunar og verður meðal annars Tokyo Sushi með útibú í hinni nýju verslun. Krónan kynnir einnig þægilega nýjung innan Skannað og skundað þar sem viðskiptavinir geta leitað að vöru í Krónuappinu inni í verslun og séð á yfirlitskorti hvar hún er staðsett. Verðmerking vörunnar fer þá að blikka þegar notandinn nálgast hana og mun þetta spara mikinn tíma í leit að réttri vöru. Fjölbreytt vöruúrval á sem allra hagstæðasta verði í gegnum alla verslun.
Umhverfisvænar áherslur
Verslunin er Svansvottuð líkt og allar verslanir Krónunnar. Hún verður meðal annars upphituð með nýjum geislahiturum sem eru afar umhverfisvænir og sparsamir á vatn. Sömuleiðis verður orkusparandi LED lýsing um alla verslun, auk þess sem umhverfisvænt CO2 kerfi mun keyra lokaðu kæla og frysta. Þyrstir viðskiptavinir og ferðamenn geta síðan fyllt á ferskt vatn í fjölnota brúsa við Krónukranann sem staðsettur er í anddyri verslunarinnar.

Uppbygging á Suðurnesjum og rífandi gangur í snjallverslun
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, er ánægð með að geta loks opnað dyrnar að nýjustu verslun Krónunnar við Fitjabraut. Fyrsta skóflustungan að húsnæðinu, sem telur í heild 10 þúsund fermetra, fór fram fyrir um tveimur árum og hefur mikil vinna farið í að hanna verslunina með áherslu á gott flæði og rúma ganga til að tryggja sem besta upplifun viðskiptavina.
Í tilefni opnunar verða ýmis tilboð í gangi alla opnunarhelgina, meðan birgðir endast. Einnig verður 5% afsláttur af öllum vörum þegar notast er við Skannað og skundað í Krónuappinu laugardag til mánudags.