Sóknarsjóður veitir tuttugu atvinnurekendum í Grindavík styrk
Byggðastofnun hefur úthlutað tæpum 67 milljónum króna úr Sóknarsjóði til 20 smærri atvinnurekenda í Grindavík. Flestir fá um 3,6 milljónir króna í styrk. Þetta er önnur úthlutun úr sjóðnum en í þeirri fyrri, í nóvember 2025, fengu 33 fyrirtæki samtals um 130 milljónir króna.
Styrkirnir fara til kaupa á tækjum og búnaði og til breytinga á rekstri sem styrkja starfsemi í bænum. Meðal þeirra sem fá styrk eru veitingastaðir, ferðaþjónusta, flutningafyrirtæki, iðnaðarmenn, tannlæknastofa og Fisktækniskóli Íslands. Fjórtán þeirra fengu líka styrk í fyrri úthlutuninni og sex bætast nú við.
Áherslan í úthlutun hefur breyst frá fyrri umferðinni. Haustið 2025 mátti sækja um rekstrarstyrk til allt að sex mánaða og um styrk til að flytja starfsemi frá Grindavík. Nú eru eingöngu veittir styrkir til að byggja upp starfsemi í bænum.
Ríkisstjórnin ákvað í mars 2025 að styðja atvinnulíf í Grindavík og stofnaði Sóknarsjóð. Byggðastofnun sér um sjóðinn og féð kemur úr varasjóði byggðaáætlunar. Fyrirtæki og einstaklingar geta fengið styrk ef þeir voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, daginn sem bærinn var rýmdur. Velta ársins 2023 þurfti að vera undir 250 milljónum króna og að minnsta kosti einn starfsmaður á launaskrá.
Úr Sóknarsjóði hafa nú farið um 197 milljónir króna til atvinnulífs í Grindavík.
Eftirfarandi aðilar hlutu styrk:
Njóttu ehf., Fjórhjólaævintýri ehf., Bryggjan Gastro ehf., 240 ehf., Pepp ehf., HP flutningar ehf., Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir, Fisktækniskóli Íslands ehf., Gistihús Grindavíkur ehf., Torfhóll ehf., Rúnar Málari ehf., Guðlaugsson ehf., Víkurfrakt ehf., VIGT ehf., Sæbýli rekstur ehf. og Fishhouse ehf. hlutu hvert um sig 3.570 þúsund króna styrk.
PGV Framtíðarform ehf. hlaut 3.214 þúsund króna styrk, Tannlæknastofa Grindavíkur ehf. 3.142 þúsund króna styrk, Hérastubbur ehf. 2.142 þúsund króna styrk og VK list ehf. 1.071 þúsund króna styrk.





