Opið hús í Myllubakkaskóla á mánudaginn um tvöföldun Reykjanesbrautar
– kynning á umhverfismati
Vegagerðin stendur fyrir opnu húsi mánudaginn 5. október kl. 16:30-18.30 í Myllubakkaskóla í Keflavík.
Umhverfismat vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar á 4,7 km kafla milli Hafnavegar og Garðskagavegar verður til kynningar.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og ráðgjafateymi verða á staðnum til að svara spurningum og veita nánari upplýsingar um umhverfismatið, framkvæmdina og áhrif hennar á nærumhverfið.
Öllum er velkomið að mæta á opna húsið.
Umhverfismatsskýrslan er nú í kynningarferli í Skipulagsgátt og er opið fyrir umsagnir og athugasemdir til 13. október.
Sjá nánar á vef Skipulagsgáttar: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/853






