Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Fréttir

Mikil „innviðaskuld“ en traust samfélagsins sterkt
Miðvikudagur 15. apríl 2026 kl. 10:57

Mikil „innviðaskuld“ en traust samfélagsins sterkt

— sagði Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS á ársfundi stofnunarinnar

„Árið 2025 er um margt merkilegt í sögu HSS. Í mínum huga ber hæst tengslin við samfélagið og það traust sem íbúar hafa sýnt okkur,“ sagði Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, á ársfundi stofnunarinnar sem fram fór 27. mars síðastliðinn. Þrátt fyrir mikinn uppgang og bætta þjónustu lagði hún þunga áherslu á að húsnæðismál stofnunarinnar væru í óviðunandi ástandi.

Guðlaug Rakel fór yfir víðan völl í ræðu sinni, allt frá stórauknum mælingum á brjóstaskimun yfir í rekstur nýrra hjúkrunarheimila og alvarlega stöðu húsnæðismála á Skólavegi í Keflavík.

Eitt af stóru gleðiefnum ársins er stóraukin þátttaka kvenna á Suðurnesjum í brjóstaskimun. Með markvissum samvinnuverkefnum við líknarfélög og Brjóstamiðstöðina tókst að hækka hlutfallið úr 42% árið 2023 í 55% á síðasta ári.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Forstjórinn upplýsti að í skoðun væri að HSS eignaðist sitt eigið tæki til skimunar með stuðningi heimafólks: „Samtök hér á Suðurnesjum hafa viðrað þá hugmynd að hjálpa okkur með kaup á slíku tæki. Þetta er verkefni sem við munum greina og vonandi innleiða á þessu ári.“

HSS fékk afar góða útkomu í þjónustukönnun ríkisstofnana og var „hástökkvari“ í nánast öllum þáttum. Guðlaug benti þó á að í könnuninni Stofnun ársins væri starfsaðstaðan sá þáttur sem fengi lægstu einkunn, sem kæmi ekki á óvart miðað við ástand innviða.

Forstjórinn talaði tæpitungulaust um svokallaða „innviðaskuld“ stofnunarinnar. Hún nefndi 37 forgangsverkefni í húsnæðismálum, þar sem efsti flokkurinn snýr að beinu öryggi sjúklinga.

„Við erum rekin á undanþágu þar sem ekki var sett upp misturkerfi þegar framkvæmdirnar voru gerðar. Undanþágan er að renna út... það mega ekki líða dagarnir, vikurnar og mánuðirnir þangað til hafist verður handa,“ sagði Guðlaug Rakel og bætti við að hluti húsnæðisins hefði verið án hita og loftræstingar í hart nær tvo áratugi.

Framtíðin í öldrunarþjónustu á svæðinu er björt. Auk nýrra rýma á Nesvöllum, sem opnuð voru í lok síðasta árs, er útlit fyrir að 90 rýma hjúkrunarheimilið á Ásbrú, sem fengið hefur vinnuheitið Hátíð, verði að veruleika innan skamms.

Að beiðni heilbrigðisráðuneytisins mun HSS einnig taka að sér rekstur Hlévangs fyrir biðsjúklinga þar til Ásbrú verður opnuð. Guðlaug lagði áherslu á að þessu fylgdu áskoranir, meðal annars þyrfti eldhúsið á Skólavegi „gagngera andlitslyftingu“ til að geta þjónustað fleiri einingar.

Að lokum kynnti forstjórinn ný rauntímaskjáborð með starfsemistölum. Hún viðurkenndi að áður hefðu tölur verið misvísandi og jafnvel skeikað þúsundum milli kerfa, en með aðstoð KPMG hefði náðst að „sjá í gegnum þokuna“.

„Framtíðarsýnin er að vera til fyrirmyndar og að lokaafurðin verði rauntímaskjáborð með starfsemistölum, gæðavísum og upplýsingum um mönnun,“ sagði Guðlaug Rakel að lokum og þakkaði starfsfólki og samfélaginu öllu fyrir ómetanlegan stuðning.

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS, á ársfundinum. VF/myndir: pket.