Fréttir

Leiðsögumenn með ferðamenn sýndu tilmælum viðbragsaðila lítinn skilning
Fimmtudagur 4. ágúst 2022 kl. 15:03

Leiðsögumenn með ferðamenn sýndu tilmælum viðbragsaðila lítinn skilning

Talsvert var af fólki við eldstöðvarnar í gær og fjölgaði ferðamönnum upp úr miðnætti. Upplýsingar um fjölda liggja ekki fyrir en talning ferðamanna var síðast uppfærð á heimasíðu Ferðamálastofu þann 2. ágúst sl. https://www.maelabordferdathjonustunnar.is/is

Tveir ferðamenn slösuðust í nótt og þurfti aðstoð Landhelgisgæslunnar við að flytja annan þeirra á sjúkrahús. Þá þurftu nokkrir ferðamenn aðstoð vegna smávægilegra meiðsla.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum þá er gönguleiðin erfið og ekki fyrir alla og það tekur göngumann um tvær klukkustundir að ganga að gosstöðvunum.

Það reynist mörgum erfitt að átta sig á aðstæðum til fjalla en þarna blása kaldir vindar. Eitthvað bar á því að leiðsögumenn með ferðamenn sýndu tilmælum viðbragsaðila lítinn skilning þegar vaðið var að stað með ferðamenn sem voru illa undir það búnir að leggja í erfiða göngu. Er það áhyggjuefni fyrir ferðaþjónustuna og fyrir þá sem í sjálfboðavinnu sinna öryggisgæslu á svæðinu. Menn taki sig á,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í tilkynningu.

„Lögregla lokar svæðum gerist þess þörf. Göngumenn taki fullt tillit til leiðbeininga og fyrirmæla frá viðbragðsaðilum. Þannig gengur okkur best,“ segir Úlfar jafnframt.

Búið ykkur vel og takið með ykkur nesti. Akstur utan vega er bannaður.

Varist gasmengun og kynnið ykkur leiðbeiningar á heimsíðu almannavarna https://www.almannavarnir.is/