Fréttir

Köld vatnsgusa í andlitið frá Reykjanesbæ
Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK.
Þriðjudagur 3. desember 2019 kl. 02:37

Köld vatnsgusa í andlitið frá Reykjanesbæ

„Um 260 félagsmenn VSFK sem starfa hjá Reykjanesbæ eru með lausan kjarasamning síðan 31. mars á þessu ári. Þessir starfsmenn eru langflestir meðal þeirra lægst launuðu hjá sveitarfélaginu. Enn fá þessir félagsmenn okkar kalda vatnsgusu í andlitið frá sveitarfélaginu,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.

„Fyrst var þeim neitað um eingreiðsluna sem kom í ágúst. Sú aðgerð var sett upp til að refsa Starfsgreinasambandsfélögum vegna þess að þau höfðu vísað deilunni til Ríkissáttarsemjara. Nú hefur Reykjanesbær hækkað laun sviðstjóra, sem þegar voru með rúmlega þreföld laun þeirra á lægstu töxtunum hjá sveitarfélaginu og er það réttlætt með þeim rökum að þeir hafa dregist aftur úr launum sviðsstjóra í öðrum sveitarfélögum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Veltum við fyrir okkur hvort Reykjanesbær hafi tekið Lífskjarasamninginn úr sambandi og hvort við megum eiga von á sambærilegri hækkun fyrir okkar félagsmenn?

Það er líka gott, í þessu samhengi, að minna á að eftir hrun var skorið niður hjá almennum starfsmönnum svo gott sem alla aukavinnu sem gerði fólki kleift að hífa upp launin sín. Þessi niðurskurður hefur ekki gengið til baka og stór hluti starfsmanna er einungis með sín grunnlaun til að lifa af.

Væri ekki nær að klára þessa samninga fyrir jólahátíðna og rétta stöðu þeirra lægst launuðu fyrst, áður en hafist er handa við hækkun hjá þeim sem þegar hafa há laun? Væri ekki nær að pressa á samninganefnd sveitarfélaga að klára þessa samninga og sýna með því almennu starfsfólki sveitarfélaga þá virðingu sem það á skilið?,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni sem Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður, undirritar fyrir hönd stjórnar VSFK.