Fréttir

KEF Center mun gerbreyta miðbæ Reykjanesbæjar á næstu 7–10 árum
Sunnudagur 2. ágúst 2026 kl. 09:53

KEF Center mun gerbreyta miðbæ Reykjanesbæjar á næstu 7–10 árum

„Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn, fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn,“ segir í hinu kunna ljóði og lagi eftir Ólínu Andrésdóttur sem flestir þekkja og hefur löngum verið notað sem lýsing á dugnaði og sjómennsku Suðurnesjamanna. Tímarnir hafa hins vegar breyst. Samhliða því að sjávarútvegur í Reykjanesbæ sem ein af undirstöðum samfélagsins hefur verið á undanhaldi hefur ferðaþjónusta tekið sífellt stærra hlutverk. Staðsetning Reykjanesbæjar við alþjóðaflugvöllinn hefur skapað ný tækifæri og þau vilja hjónin Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir nýta enn betur með nýrri framtíðarsýn sem ber nafnið KEF Center.

Á síðustu áratugum hafa þau byggt upp fjölbreytta starfsemi á svæðinu, allt frá Hótel Keflavík sem opnaði árið 1986 til Diamond Suites, KEF SPA & Fitness og enduruppbyggingar hins sögufræga Vatnsness eins og við greindum frá nýverið. Nú telja þau tímabært að stíga næsta skref.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Við höfum verið að byggja upp eitt verkefni í einu í tæp fjörutíu ár. Öll þessi verkefni hafa kennt okkur mikið og lagt grunninn að því sem við sjáum nú fyrir okkur. KEF Center er eðlilegt framhald af þeirri vegferð,“ segir Steinþór.

Mikil uppbygging síðustu ár

Eftir heimsfaraldurinn árið 2020 tók starfsemi Hótel Keflavíkur miklum breytingum. Á síðustu árum hefur bæst við ný veitingaaðstaða, KEF SPA & Fitness, Diamond Suites og endurbyggt Vatnsnes sem hefur vakið mikla athygli meðal gesta. Þessi uppbygging hefur skilað sér í sterkari rekstri og á aðeins sex árum hefur velta fyrirtækisins nær fjórfaldast.

Fyrir rúmu ári var KEF Center ehf. stofnað og síðan þá hafa farið fram fjölmargir fundir með fjárfestum, lóðareigendum og öðrum sem hafa áhuga á þróun svæðisins.

„Við teljum rétt að kynna þessar hugmyndir fyrir bæjarbúum og nýrri bæjarstjórn. Reykjanesbær hefur alla burði til að byggja upp öflugan miðbæ sem nýtir einstaka staðsetningu bæjarins og styrkir samfélagið til framtíðar.“

Hann segir að viðbrögðin hafi verið mjög jákvæð.

„Við höfum sýnt með verkum okkar að við höfum trú á svæðinu. Uppbygging KEF SPA, endurgerð Vatnsness og kaup á lykillóðum eru allt hluti af stærri mynd og í raun upphafið að KEF Center. Nú er verkefnið hins vegar orðið það umfangsmikið að það verður aðeins unnið í góðu samstarfi við aðra.“

Byggt á sérstöðu Reykjanesbæjar

Framtíðarsýnin byggir á þeim kostum sem Reykjanesbær býr yfir og tryggir að ferðamenn nýti samfélagið innan bæjarmarka okkar. Alþjóðaflugvöllurinn, höfnin og nálægðin við höfuðborgarsvæðið skapa tækifæri sem fá sveitarfélög hafa.

Markmið verkefnisins er að efla miðbæinn með nýjum íbúðum, fjölbreyttri þjónustu, verslun, atvinnustarfsemi og afþreyingu. Hugmyndin er að skapa bæjarumhverfi sem þjónar fyrst og fremst íbúum en verður jafnframt eftirsóknarverður áfangastaður fyrir gesti og ferðamenn sem vilja lifandi samfélag fyrir og eftir flug.

Steinþór segir reynsluna af KEF SPA hafa styrkt þá sannfæringu. „Þegar við kynntum þá hugmynd töldu margir hana of metnaðarfulla. Í dag sjáum við heimamenn, fólk af höfuðborgarsvæðinu og ferðamenn nýta aðstöðuna alla daga ársins. Það sýnir svart á hvítu að ef hugmyndin er góð og framkvæmdin vönduð, þá er hægt að byggja upp öfluga starfsemi hér á svæðinu.“

Samhliða þessu vinnur KEF Service, ferðaskrifstofa þeirra hjóna, að nýjum samstarfsverkefnum með fyrirtækjum á Reykjanesi, flugfélögum og öðrum þjónustuaðilum til að styrkja svæðið enn frekar sem áfangastað.

KEF Lagoon tekur á sig mynd

Eitt stærsta verkefnið sem tengist framtíðarsýninni er KEF Lagoon. Að sögn Steinþórs hefur hugmyndin verið í undirbúningi í nokkur ár og meðal annars verið unnið með HS Veitum að því að fara yfir forsendur verkefnisins.

Hugmyndin er að KEF Lagoon, sem yrði á besta útsýnisstað Suðurnesja, tengist KEF SPA & Fitness sem gæti stækkað verulega á komandi árum án þess að breyta þeirri upplifun sem gestir þekkja í dag. Göngu- og hjólaleiðin meðfram sjónum verður áfram mikilvægur hluti af svæðinu og tengir nýja uppbyggingu við bæinn. Steinþór segir jafnframt að fundað hafi verið með flestum eigendum lóða á Vatnsnesi og nokkrar viljayfirlýsingar hafi þegar verið undirritaðar.

Næstu skref og 1.100 nýjar íbúðir

Næst á dagskrá er að vinna deiliskipulag á eigin lóðum félagsins og leggja það fyrir skipulagsyfirvöld. Á sama tíma verður áfram unnið með lóðareigendum, fjárfestum og byggingaraðilum að frekari þróun verkefnisins.

Ein þeirra leiða sem eru til skoðunar er að stofna sameiginlegt þróunarfélag þar sem eigendur leggja inn lóðir og eignir. Slík leið gæti skapað sterkari rekstrargrundvöll, lækkað fjármagnskostnað og gert uppbygginguna sveigjanlegri eftir því sem eftirspurn eykst. Jafnframt gæti hún verið áhugaverð fyrir lífeyrissjóði og aðra langtímafjárfesta.

Framtíðarsýnin gerir ráð fyrir allt að 1.100 nýjum íbúðum á næstu sjö til tíu árum með áherslu á fjölbreytta uppbyggingu atvinnuhúsnæðis, verslunar og þjónustu. „Við lítum ekki á þetta sem verkefni sem á eigi að koma í stað annarrar uppbyggingar í Reykjanesbæ. Þvert á móti teljum við að þetta geti styrkt aðra uppbyggingu í bænum og skapað fleiri tækifæri fyrir íbúa og atvinnulíf, m.a. í samstarfi við alþjóðaflugvöllinn,“ segir Steinþór.

Vatnsnes tekur stakkaskiptum

Ef þessi framtíðarsýn verður að veruleika mun Vatnsnes breytast verulega á næstu árum. Gamalt atvinnusvæði mun smám saman þróast í nýjan bæjarkjarna þar sem íbúðir, verslun, veitingastaðir, þjónusta og atvinnulíf verða samofin.

Lögð verður áhersla á vandaða hönnun, græn svæði og góðar göngutengingar þannig að auðvelt verði að njóta svæðisins allt árið. Nálægðin við sjóinn verður áfram eitt helsta sérkenni Vatnsness og lögð verður áhersla á að ný uppbygging falli vel að umhverfinu og sögu staðarins.

Hugmyndin er að skapa lifandi bæjarhluta þar sem fólk býr, vinnur og nýtur þjónustu í göngufæri. Svæði sem verður jafn aðlaðandi fyrir íbúa Reykjanesbæjar og þá gesti sem sækja bæinn heim.

Horft til framtíðar

Framtíðarsýn KEF Center hefur verið unnin í samstarfi við JeESarkitekta og Jón Stefán Einarsson. Á næstu misserum verður áfram unnið að skipulagi, samráði og frekari útfærslu verkefnisins.

„Við viljum byggja þetta upp í samvinnu við sem flesta. Því fleiri sem taka þátt, því betra verður verkefnið og því meiri ávinningur verður fyrir Reykjanesbæ til framtíðar,“ segir Steinþór.

Hann hvetur þá sem hafa áhuga á verkefninu, hvort sem það eru lóðareigendur, fjárfestar eða fyrirtæki, til að hafa samband. Áhugasamir geta haft samband við Steinþór Jónsson á netfangið [email protected] til að kynna sér verkefnið frekar eða ræða mögulegt samstarf og hugmyndir.

Eignasalan
Eignasalan