Dubliner
Dubliner

Fréttir

Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ síðdegis
Mánudagur 1. desember 2025 kl. 14:10

Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ síðdegis

Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn þann 1. desember líkt og síðustu ár. Dagskrá verður í báðum byggðakjörnum, Garði og Sandgerði þar sem boðið verður upp á skemmtidagskrá í kjölfar þess að yngstu nemendur grunnskólanna ásamt bæjarstjóra kveikja jólaljós á jólatrjám. Breyting verður á staðsetningu í ár í Sandgerði. Undanfarin ár hefur skemmtunin verið við Sandgerðisskóla en verður í ár við Vörðuna.

Dagskrá:

17.00 kveikt á jólatrénu við Ráðhúsið í Garði.

Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Garði.
Jólasveinar skemmta og gefa glaðning.
Heitt súkkulaði, piparkökur og mandarínur í umsjón Reynis/Víðis.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

18.00 kveikt á jólatrénu við Vörðuna í Sandgerði.

Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Sandgerði.
Jólasveinar skemmta og gefa glaðning.
Heitt súkkulaði, piparkökur og mandarínur í umsjón Reynis/Víðis.

Dubliner
Dubliner