Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Fréttir

Sjöunda orkuverið gangsett í Svartsengi
orkuverið í Svartsengi. Myndir: Ragnar Th. Sigurðsson
Mánudagur 1. desember 2025 kl. 16:00

Sjöunda orkuverið gangsett í Svartsengi

Formleg gangsetning sjöunda orkuversins í Svartsengi fór fram við hátíðlega athöfn í dag að viðstöddum fjölda gesta. Um er að ræða 55 MW vélarsamstæðu sem jafnframt er stærsti gufuhverfill landsins. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, afhjúpuðu skjöld af þessu tilefni.

Fyrsta skóflustungan að verkinu var tekin í árslok 2022 og stóðust allar verk- og tímaáætlanir þrátt fyrir stöðugar áskoranir náttúruaflanna á Reykjanesi á verktíma. Ætla má að kostnaður við stækkun og endurbætur orkuversins muni nema ríflega 14 milljörðum króna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Eldri búnaður er einnig endurbættur

Orkuver sjö leysir af hólmi tvö af eldri orkuverum HS Orku í Svartsengi auk þess sem framkvæmdin felur í sér umtalsverðar endurbætur á ýmsum búnaði er tengist heitavatnsframleiðslu fyrirtækisins. Stækkunin eykur framleiðslugetu á raforku í Svartsengi um allt að þriðjung en framleiðslugetan er nú um 63 MW.

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, er að vonum ánægður með áfangann sem er liður í enn frekari uppbyggingu fyrirtækisins á komandi árum:

„Í ljósi náttúruhamfaranna sem gengið hafa yfir Reykjanes á framkvæmdatímanum er það einstakt afrek að byggja þessa nýjustu virkjun Íslands þannig að allar áætlanir hafi staðist. Allir sem að verkefninu hafa komið eiga mikið hrós skilið, jafnt verktakar og ráðgjafar sem starfsfólk HS Orku.“

Níu eldgos á framkvæmdatíma

Jarðhræringar og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni, sem hófust fyrir alvöru 10. nóvember 2023, settu mark sitt á verkefnið. Gosið hefur samtals níu sinnum í gígaröðinni á framkvæmdatímanum og gasmengun á svæðinu hefur ítrekað sett strik í reikninginn.

Vinnusvæðinu var lokað í um fjóra mánuði frá nóvember 2023 til mars 2024 en þrátt fyrir þessar áskoranir tókst, með samhentu átaki og útsjónarsemi allra sem að verkinu komu, að ljúka því samkvæmt upprunalegri tímaáætlun. Gott samstarf og samráð við almannavarnir og aðra viðbragðsaðila á tímabilinu skiptu einnig sköpum.

Ístak, Rafal og HD aðalverktakar

Alls voru aðalverktakar í verkefninu þrír talsins: Ístak sá um byggingaframkvæmdir auk öryggis- og samræmingarmála á verkstað, Rafal sá um uppsetningu á rafbúnaði og HD um uppsetningu vélbúnaðar.

Fjöldi annarra verktaka og undirverktaka komu að verkinu; hönnun virkjunarinnar var í höndum Verkís og Arkitektastofunnar OG, verkfræðistofan Strendingur sá um bygginga- og verkefnisstjórn mannvirkja, Lota fór með forritun á stjórnkerfi og Ellert Skúlason ehf. sá um jarðvinnu. Vélarsamstæðan, hverfill og rafall koma frá Fuji í Japan en starfsmenn á þeirra vegum hafa dvalist hér á landi allt þetta ár við uppsetningu og undirbúning gangsetningarinnar.

Þegar mest var unnu allt að 120 starfsmenn HS Orku og verktaka að verkinu á degi hverjum og því var að mörgu að hyggja þegar rýma þurfti svæðið vegna eldsumbrota og gasmengunar.

Frekari stækkun möguleg

Mat Skipulagsstofnunar var að stækkunarframkvæmdin þyrfti ekki að undirgangast fullt mat á umhverfisáhrifum og sótti HS Orka um nýtt nýtingar- og virkjunarleyfi árið 2022 fyrir allt að 85 MW framleiðslu á grundvelli þess. Uppsett heildarvélarafl Svartsengis getur því rúmað frekari stækkun svo fremi sem sjálfbærni jarðhitaauðlindarinnar er tryggð.
Orkuverið verður byggt í sjö áföngum.

Orkuverið í Svartsengi er fyrsta blandaða jarðvarmavirkjunin á Íslandi en þar er framleidd raforka og heitt vatn. Virkjunin var reist undir merkjum Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Orku. Jarðvarmavinnsla hófst árið 1976 og var orkuverið síðar byggt upp í sex áföngum á ríflega þremur áratugum. Nú hefur sjöundi áfanginn verið tekinn í notkun.

Um HS Orku

HS Orka starfar á traustum grunni Hitaveitu Suðurnesja sem stofnuð var í árslok 1974. Frá upphafi hefur fyrirtækið verið í forystu um framleiðslu á endurnýjanlegri orku á Íslandi og er það þriðji stærsti raforkuframleiðandi landsins. Eignarhald skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku. Uppbygging Auðlindagarðs HS Orku er í fyrirrúmi þar sem áhersla er lögð á fullnýtingu auðlindastrauma frá jarðvarmavirkjunum. HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Svartsengisvirkjun og Reykjanesvirkjun, ásamt tveimur vatnsaflsvirkjunum. Þær eru Brúarvirkjun í Biskupstungum og Fjarðarárvirkjanir á Seyðisfirði.

Dubliner
Dubliner