JS Campers
JS Campers

Fréttir

Heitt vatn og rafmagn í lagi í Grindavík - hver er staðan á innviðum?
Föstudagur 1. desember 2023 kl. 15:00

Heitt vatn og rafmagn í lagi í Grindavík - hver er staðan á innviðum?

Mikil vinna fer nú fram við að kanna stöðu innviða í Grindavík og ástand þeirra og eru margir að störfum víða um bæinn að sinna viðgerðum. Mesta tjónið sem unnið er að viðgerðum að þessa stundina er á gatnamótum Austurvegar og Stamphólsvegar 

Mkilvægt er að íbúar og fyrirtæki hafi í huga að ástand lagna getur tekið breytingum þar sem landið er enn á hreyfingu, segir í tilkynningu. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Lagnir Grindavíkurbæjar – kalt vatn, fráveita og gatnalýsing

Unnið hefur verið að því að mynda fráveitulagnir í götum og gengur sú vinna vel. Notast er við þrjár myndavélar, þ.e. þrír hópar eru að mynda. Þær lagnir sem hafa verið myndaðar koma ágætlega út. Vesturstofn fráveitukerfisins fór illa í sprungu neðan við Kirkjustíg en viðgerð þar er lokið. Þá hefur verið staðið í smærri viðgerðum víða um bæ. Viðgerð á fráveitulögn við Austurveg er umfangsmikil, vonir standa til að viðgerð þar ljúki í næstu viku. Vinna við mælingar á hæð í brunnum fráveitunnar er hafin. Sú vinna skiptir máli til að fá fullvissu um sjálfrennsli. 


Grindavíkurbær getur staðfest að fráveitulagnir við Hafnargötu, Ægisgötu og Seljabót er í lagi. Tilkynnt verður um það þegar staðfesting liggur fyrir í fleiri götum. 


Staðan á kalda vatninu er almennt nokkuð góð. Kalt vatn er á stórum hluta bæjarins en stefnt er að því að kalt vatn verði komið á allan bæinn strax eftir helgi. Mesta tjónið á vatnsveitunni er við Austurveg við Grindavíkurkirkju. Samhliða vinnu við lagnakerfið er unnið í lekaleit á kerfinu.  Íbúar eru hvattir til að nota ekki salerni, vaska, uppþvottavélar o.s.frv. í þeim húsum sem hafa kalt vatn þar til það verður staðfest að fráveitukerfið frá þeirra húsum er í lagi og skili skólpi sína leið til sjávar.

Gatnalýsingin hefur haldið velli en sem komið er, ljós er á staurum en þó nokkrir þeirra eru skakkir.

Ábendingar um vatns- og fráveitu Grindavíkurbæjar skal senda á [email protected]


Lagnir HS veitna, Mílu og Ljósleiðarans

Heitt vatn og rafmagn er á öllum bænum sem þjónað er af HS veitum. Stofnleiðir fjarskiptakerfa eru að mestu leyti í lagi, samkvæmt samtölum Grindavíkurbæjar við Mílu og Ljósleiðarann. Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að setja sig í samband við þessa aðila ef heitt vatn, rafmagn og fjarskipti hjá þeim virka ekki sem skyldi. 


Fyllingar í sprungur og holur

Framkvæmdir við það að fylla í sprungur og holur eru hafnar, en þessar framkvæmdir eru mikilvægar til að tryggja öryggi íbúa, starfsmanna fyrirtækja, viðbragðsaðila og annara aðila á ferð sinni um bæinn. Hver og ein sprunga verður gengin, skrásett og fyllt. Þeir sem hafa ábendingar um sprungur og/eða holur t.d. á lóðum sínum er bent á að tilkynna þær á  [email protected]

Lokið hefur verið við að setja upp öryggisgirðingar í kringum sprunguna frá Salthúsinu að Landsbankanum. Enginn á að vera á því svæði nema þeir sem eru við framkvæmdir. 

Mikilvægt er að íbúar og aðrir sem koma til Grindavíkurbæjar ferðist um á götum og gangstéttum og takmarki gangandi umferð sína eins og kostur er.

Það er enn hreyfing á jörðinni, sprungur og holur geta opnast fyrirvaralaust.