Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Guð­laug ráð­in skóla­stjóri í Grinda­vík
Sunnudagur 29. mars 2026 kl. 08:12

Guð­laug ráð­in skóla­stjóri í Grinda­vík

Guðlaug Erlendsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri í nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Guðlaug býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun og kennslu. Undanfarin tvö ár hefur hún starfað sem skólastjóri við Grunnskóla Borgarness. Þar áður starfaði hún sem aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla Grindavíkur í sjö ár og gegndi jafnframt stöðu deildarstjóra miðstigs.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Guðlaug er með doktorspróf í menntavísindum frá Háskóla Íslands, auk M.Ed. í stjórnun menntastofnana, MA í félagsfræði og BA í sál- og afbrotafræði og kennsluréttindi frá Kennaraháskóla Íslands.

Hún hefur einnig starfað við kennslu í Mósambík og Namibíu, auk þess að hafa verið umsjónarkennari við Fellaskóla, Brekkubæjarskóla og Grunnskóla Raufarhafnar.

„Ráðning Guðlaugar er stórt og jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu skólastarfs í Grindavík. Reynsla hennar af kennslu og stjórnun, ásamt tengslum við samfélagið í Grindavík, leggur góðan grunn að skólastarfi í nýjum skóla,“ segir í frétt Grindavíkurbæjar.

Guðlaug mun hefja störf við fyrsta tækifæri og leiða undirbúning fyrir skólahald í Grindavík í haust.