Grænt ljós á nýjar sjóvarnir við Gauksstaði í Garði
Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að veita framkvæmdaleyfi fyrir umfangsmiklum endurbótum á sjóvörnum við strandlengju Gauksstaða í Garði. Markmiðið er að verjast landbroti og draga úr hættu á sjávarflóðum á svæðinu.
Það er fyrirtækið Lion ehf. sem sótti um leyfið, en umsókninni fylgdu ítarleg gögn um umfang og útfærslu framkvæmdarinnar. Þar á meðal voru útboðsteikningar, verklýsing, umsögn frá Veðurstofu Íslands og samþykki frá Vegagerðinni.
Um er að ræða endurbyggingu og styrkingu á núverandi landbrotsvörn sem á að bæta vernd gegn sjávarágangi á þessum slóðum, en flóðahætta á svæðinu hefur verið til umræðu innan stjórnsýslu sveitarfélagsins að undanförnu.
Ráðið fól skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið til handa Lion ehf., með þeim fyrirvara að framkvæmdin verði unnin í ströngu samræmi við framlögð gögn og gildandi lög og reglugerðir.






