Public deli
Public deli

Fréttir

Grænabyggð ehf. deiliskipuleggur 779 íbúða byggð
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 13. desember 2022 kl. 14:27

Grænabyggð ehf. deiliskipuleggur 779 íbúða byggð

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt afgreiðslu skipulagsnefndar en nefndin leggur til við bæjarstjórn að heimila Grænubyggð ehf. að hefjast handa við vinnu deiliskipulags á fyrirhuguðu svæði skv. samkomulagi við sveitarfélagið.

Nefndin ítrekar í afgreiðslu sinni að hámarksfjöldi eininga á svæðinu séu 779 sem Grænabyggð ehf. hefur til umráða. Áréttar nefndin jafnframt að áður en sveitarfélagið veitir heimild til framkvæmda og sölu á byggingarrétti þá skal fyrri áfangi vera langt kominn bæði hvað varðar framkvæmdir og úthlutun lóða. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024