Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Framkvæmdastjóri SSS um málefni FS: „Þetta er gjörsamlega óþolandi“
Fimmtudagur 16. apríl 2026 kl. 16:41

Framkvæmdastjóri SSS um málefni FS: „Þetta er gjörsamlega óþolandi“

Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, segir uppsögn Kristjáns Ásmundssonar, skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, vera merki um að eitthvað sé „verulega að“ í menntamálum á svæðinu. Hún sakar stjórnvöld um að láta Suðurnesin sitja eftir í uppbyggingu og fjármögnun.

Í harðorðri stöðufærslu á Facebook í dag lýsir Berglind því að aðstæður við skólann séu hreinlega ekki boðlegar. Skólinn þurfi að treysta á kennslustofur í gámaeiningum, sumarbústöðum og leigðu húsnæði, þrátt fyrir að íbúafjöldi á Suðurnesjum hafi tvöfaldast frá því að byggt var síðast við skólann.

Nemendur metnir „minna virði“

Berglind dregur fram sláandi tölur um fjárhagslega mismunun en hún segir nemandaígildi við FS vera metið 455.000 krónum minna virði, eða 16%, en hjá öðrum sambærilegum skólum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

„Þetta er enn eitt dæmi um misskiptingu fjármuna, þar sem Suðurnesin eru látin sitja eftir,“ segir Berglind og bendir á að nemendum af erlendum uppruna hafi fjölgað mikið og meiri eftirspurn sé eftir námi en áður.

Framúrskarandi árangur þrátt fyrir vanrækslu

Þrátt fyrir þessa erfiðu aðstöðu og fjárskort segir Berglind skólann skila einum besta árangri á landinu. Brottfall í FS er aðeins um 3%, sem þykir framúrskarandi á landsvísu. Berglind lýsir yfir mikilli óánægju með að engar ákvarðanir hafi verið teknar um uppbyggingu og að engar tímasetningar liggi fyrir hjá ríkinu.

Eftirsjá að skólameistara

Að lokum lýsir Berglind yfir þakklæti til Kristjáns Ásmundssonar, sem nú hefur sagt upp störfum eftir áratuga farsælt starf sem stjórnandi.

„Þegar skólameistari með 40 ára reynslu segir upp þá er eitthvað verulega að. Það er afar sárt að sjá á eftir Kristjáni sem hefur verið farsæll sem stjórnandi og á hann bestu þakkir fyrir sitt framlag til menntunar á Suðurnesjum,“ segir Berglind að lokum.