Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Framboðsliti Viðreisnar í Suðurkjördæmi
Fjórir efstu frambjóðendur Viðreisnar f.v.: Þórunn Wolfram Pétursdóttir, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Elva Dögg Sigurðardóttir og Guðbrandur Einarsson.
Fimmtudagur 22. apríl 2021 kl. 13:40

Framboðsliti Viðreisnar í Suðurkjördæmi

Fyrsti framboðslistinn sem Viðreisn kynnir fyrir þingkosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi er í Suðurkjördæmi.

Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, leiðir listann. Í öðru sæti er Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

 Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg, skipar þriðja sæti listans og Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er í fjórða sæti.

 Listinn er skipaður tuttugu öflugum frambjóðendum. Þau eru á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu og hafa sameiginlega sýn á framtíð íslensks samfélags.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi:

  1. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Reykjanesbær.

  2. Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Hveragerði.

  3. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg. Selfoss.

  4. Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Reykjanesbær.

  5. Axel Sigurðsson, matvæla- og búfræðingur. Selfoss.

  6. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður. Hveragerði.

  7. Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.

  8. Kristina Elísabet Andrésdóttir, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.

  9. Bjarki Eiríksson, sölu- og þjónusturáðgjafi. Hella.

  10. Jasmina Crnac, stjórnmálafræðingur. Reykjanesbær.

  11. Jóhann Karl Ásgeirsson, háskólanemi. Hveragerði.

  12. Kristjana H. Thorarensen, geðtengslafræðingur. Þorlákshöfn.

  13. Halldór Rósmundur Guðjónsson, lögfræðingur. Reykjanesbær.

  14. Justyna Wroblewska, deildarstjóri í leikskóla og nemi í mannauðsstjórnun. Reykjanesbær.

  15. Heimir Hafsteinsson, trésmíðameistari og aðstoðarmaður byggingafulltrúa í Rangárþingi ytra. Hella.

  16. Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Vestmannaeyjar.

  17. Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður. Vestmannaeyjar.

  18. Guðbjörg Ingimundardóttir, sérkennari. Suðurnesjabær.

  19. Hannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Þorlákshöfn.

  20. Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Selfoss.