Enn eitt flugeldasölumetið hjá Ægi í Garði
Björgunarsveitin Ægir í Garði hefur lokið uppgjöri á flugeldasölu nýliðinna áramóta og niðurstaðan er afar jákvæð, enn eitt metárið í sölu flugelda í Garðinum. Í færslu sveitarinnar kemur fram að gott sé að ljúka árinu með þessum mikla meðbyr, sem gefi kraft inn í komandi ár.
Sveitin þakkar innilega fyrir stuðninginn og óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs. Með færslunni fylgir mynd frá lokun flugeldasölunnar þar sem sölufólk stendur fyrir framan hálftómar hillur, sem starfsfólk hafi þurft að berjast við að bæta stöðugt á.
Árangurinn kemur á sérstökum tímamótum, en Björgunarsveitin Ægir varð 90 ára á árinu 2025.





