Eldey skelfur í jarðskjálftahrinu
Fremur áköf jarðskjálftahrina hófst við Eldey kl 12:40 í dag 8. febrúar og hafa um 100 skjálftar mælst til þessa, en hrinan stendur enn yfir.
Stærsti skjálftinn hingað til mældist 2,8 að stærð kl 13:08, en Veðurstofu Íslands hafa ekki borist tilkynningar um að hann hafi fundist í byggð.
Jarðskjálftahrinur við Eldey eru fremur algengar, þær eru alla jafnan vegna flekahreyfinga en aukin spenna á Reykjanesskaga umbrota þar síðan 2020 hafa einnig aukið tíðni jarðskjálftahrina á svæðinu.
Síðast var hrina við Eldey 3. desember 2025.






