Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Eggjaþjófar stálu undan æðarkollum í Stafnesi
Fimmtudagur 4. júní 2020 kl. 08:54

Eggjaþjófar stálu undan æðarkollum í Stafnesi

Þrír karlmenn voru staðnir að því að stela eggjum undan æðarkollum í varplandinu Stafnesi við Sandgerði fyrr í vikunni. Þegar sá sem stóð þá að verki sá þá voru þeir að ganga um æðavarpið og voru allir með plastpoka. Hann ræddi við þá og sögðust þeir vera að taka myndir og fleira í þeim dúr en harðneituðu að hafa verið að tína egg. Engu að síður voru þrír plastpokar með samtals 135 eggjum, sem enn voru volg, skammt frá bifreið þeirra.

Lögreglan á Suðurnesjum færði mennina á lögreglustöð þar sem þeir höfðu gerst sekir um brot á reglugerð um friðun tiltekinna villtra fugla og friðlýsingu æðavarps.

Public deli
Public deli