Fréttir

Eftirlýstur ökumaður í neyslu tekinn á 138 km. hraða
Föstudagur 6. september 2019 kl. 10:09

Eftirlýstur ökumaður í neyslu tekinn á 138 km. hraða

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 138 km hraða á Reykjanesbraut í vikunni, þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund, reyndist hafa fleira óhreint í pokahorninu. Hann viðurkenndi neyslu fíkniefna sem sýnatökur síðan staðfestu. Þá var hann eftirlýstur vegna boðunar í dóm.

Farþegi í annarri bifreið, sem lögregla stöðvaði, var með meint fíkniefni í fórum sínum, bæði kannabis og hvítt duft.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Allmargir ökumenn voru svo kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.