Fréttir

Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland
Föstudagur 24. júlí 2020 kl. 10:15

Blað brotið í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland

Markaðsstofur landshlutanna ýta úr vör langstærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa ráðist í. Verkefnið er mikilvægur hlekkur í enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs. 

Markaðsstofur landshlutanna, MAS, hafa ýtt úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs. Þetta er langstærsta þróunarverkefni sem MAS hefur tekið sér fyrir hendur.  

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Verkefnið ber yfirskriftina Upplifðu og er sannkölluð stafræn bylting þegar kemur að skipulagningu ferðalaga um Ísland sem og upplýsingagátt um það sem í boði er. Allar sex markaðsstofur landshlutanna, Markaðsstofa Norðurlands, Markaðsstofa Vestfjarða, Markaðsstofa Vesturlands, Austurbrú, Markaðsstofa Reykjaness og Markaðsstofa Suðurlands standa að verkefninu. 

Um ræðir gagnvirkt vefsvæði, www.upplifdu.is þar sem notendum gefst kostur á að sníða ferðalagið nákvæmlega eftir sínu höfði og fá aðstoð við að sjá hvað er í boði á hverjum stað, fá nákvæma tímaáætlun milli áfangastaða og síðast en ekki síst, uppgötva nýja möguleika á myndrænan hátt. 

„Það er afar ánægjulegt að sjá verkefnið verða að veruleika, en það hefur verið á óskalista okkar frá upphafi samstafs markaðsstofanna. Þessi vefur kemur til með að auðvelda okkur, gestum okkar og ferðaþjónustuaðilum að setja saman hugmyndir að ferðum um Reykjanesið og landið allt og til að endurspegla það sem svæðin hafa uppá að bjóða.  Nú getum við valið áhugaverða staði til að skoða og afþreyingu til að upplifa og deilt því með einföldum hætti með samferðafólki okkar eða á samfélagsmiðlum,“ segir Þuríður Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness.

Upplifdu.is brýtur þannig blað í sögu upplýsingagjafar til ferðalanga um Ísland en ekki eru fordæmi fyrir viðlíka gagnvirkri síðu með jafn yfirgripsmiklar upplýsingar á fjölmörgum sviðum ferðaþjónustu á Íslandi. Þróun og framleiðsla er í höndum framleiðslustofunnar Tjarnargötunnar og er myndefnið sem prýðir síðuna unnið úr einum stærsta myndabanka sem gerður hefur verið úr efni frá Íslandi.  

„Þetta er stórt skref frammávið fyrir okkur og við hlökkum til að þróa þetta áfram með sveitarfélögum og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu. Við eigum mikið inni og þessi gagnagrunnur á eftir að vaxa og dafna okkur öllum til hagsbóta,“ segir Þuríður. 

 

  

Viðbót um virkni síðunnar: 

Síðan er einföld í notkun og miðar að því að sem flestir geti nýtt sér hana. Notendur velja sér upphafspunkt ferðalags og geta svo séð hvað er í boði á hverjum þeim stað sem heillar og handvelja hvað skuli heimsækja og hvaða afþreyingu og þjónustu skuli nýta meðan á heimsókn stendur. Hægt er að velja þar til gerðar síur til að auðvelda enn frekar skipulagningu ferðarinnar og eru þær síur þrjár; staðir, afþreying og þemu. Sían staðir nær til að mynda yfir kirkjur, fornminjar, útsýni, gil og gljúfur, jökla og hella. Afþreying yfir baðstaði, hvalaskoðun, matarupplifanir, hjólaferðir, golfvelli, dýragarða ofl. Þemun endurspegla svo tegund ferðar, fjölskylduferð, ævintýraferð, söguslóðir, afslöppun, menningu, dýralíf eða náttúru. 

Þegar búið er að velja eru óskir ferðalangsins dregnar saman og úr verður heildstæð ferðaáætlun í formi myndbands sem og skjals, sem nær ekki aðeins utan um spennandi ferðalag heldur einnig utan um hagnýta hluti eins og lengd aksturs milli áfangastaða og áætlaðan tíma í hverri afþreyingu.  

Sjá enn frekar : www.upplifdu.is