Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Þriðjudagur 14. apríl 2026 kl. 06:05

Benedikt Ófeigsson mætir í Kvikuna: Milliliðalaust spjall um jarðhræringar

Miðvikudagskaffið í Kvikunni í Grindavík hefur fest sig í sessi sem dýrmætur vettvangur fyrir Grindvíkinga til að hittast, ræða málin og njóta samveru. Næstkomandi miðvikudag, 15. apríl, mætir sérstakur gestur í spjall en það er Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

Benedikt, sem er fagstjóri aflögunarmælinga, hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarin misseri vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Hann mun sitja fyrir svörum í milliliðalausu spjalli við Alla á Eyri, þar sem gestum gefst tækifæri á að heyra nýjustu vendingar og ræða stöðuna beint við einn helsta sérfræðing landsins á þessu sviði.

Nesraf
Nesraf
Kaffi, veitingar og spjall

Húsið opnar klukkan 10:00 og eins og venjulega verður boðið upp á veitingar með kaffinu. Skipuleggjendur leggja áherslu á mikilvægi þess að íbúar nýti þennan vettvang til að koma saman, enda er samveran og samtalið mikilvægara nú en oft áður.

Grindavíkurbær hvetur alla velkomna í Kvikuna til að eiga góða stund saman og fá svör við þeim spurningum sem brenna á fólki varðandi jarðeðlisfræðina í okkar nánasta umhverfi, segir í tilkynningu.