Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Án allra réttinda í atvinnuakstri
Miðvikudagur 16. október 2019 kl. 08:39

Án allra réttinda í atvinnuakstri

Erlendur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stóð að því að flytja farþega gegn gjaldi um helgina reyndist ekki hafa ökuréttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Þá var hann ekki með skráð dvalarleyfi hér á landi.

Maðurinn var að aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar með farþega í bifreiðinni þegar lögregla stöðvaði hann. Þegar hann gat ekki framvísað tilskyldum leyfispappírum var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla.

Public deli
Public deli

Þetta er í annað sinn á árinu sem þessi sami maður er staðinn að slíkum verknaði því í febrúar sl. hafði lögregla afskipti af honum vegna svipaðs máls. Þá var hann í akstri með þrjá farþega sem voru nýkomnir úr flugi. Hann hefur með þessu gerst tvívegis brotlegur við lög um útlendinga og lög um akstur með farþega í atvinnuskyni.