Langbest þakkargj
Langbest þakkargj

Aðsent

Roðagyllum heiminn – Þekkjum rauðu ljósin
Miðvikudagur 25. nóvember 2026 kl. 01:22

Roðagyllum heiminn – Þekkjum rauðu ljósin

Þess vegna heitir átak okkar Soroptimista READ THE SIGNS — Þekktu rauðu ljósin. Við ætlum ekki aðeins að þekkja rauðu ljósin um ofbeldi í samböndum, einangrunina og ógnanirnar. Við ætlum líka að rýna í framkvæmdina á loforðum stjórnvalda. Var fagfólk þjálfað? Eru athvörf fyrir hendi? Ráðfæra stjórnvöld sig við konur og kvennahreyfingar? Og hvað segir GREVIO-skýrslan um Ísland?

Samningur sem fæstir hafa heyrt um

Istanbúlsamningurinn — Evrópuráðssamningurinn um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi.  Ísland undirritaði samninginn  í Istanbúl 11. maí 2011 og fullgilti  hann 1. ágúst 2018. Hann er víðtækasti lagalega bindandi gerningur heims á þessu sviði.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Samningurinn hvílir á fjórum stoðum: 

  • Forvörnum, þar sem fast er tekið á rót vandans  með fræðslu og þjálfun ýmissa faghópa. 
  • Vernd, sem tryggir þolendum aðgang að athvarfi, hjálparlínum og sérhæfðri aðstoð, en samkvæmt Istanbúlsamningum er lágmarksviðmið eitt fjölskyldrými eða rúm fyrir hverja 10.000 íbúa.
  • Saksókn, sem gerir allar birtingarmyndir ofbeldis refsiverðar, þar á meðal andlegt ofbeldi, eftirför (umsátur) og kynferðisofbeldi byggt á skorti á samþykki.
  • Samræmdri stefnu, þar sem kynjaviðmið er fléttað inn í alla stjórnsýslu með gagnasöfnun, eftirliti og fullnægjandi fjármögnun.

Þetta er ekki hugsjónalisti. Þetta er samningur sem ríki gengust  undir af frjálsum vilja — og hann er mælanlegur. Framkvæmdin er metin af GREVIO, óháðri sérfræðinganefnd Evrópuráðsins sem birtir skýrslur sínar opinberlega. Skýrslurnar eru aðgengilegar öllum. Munurinn á því sem stendur í þeim og því sem við sjáum í okkar nærumhverfi er eitt besta verkfærið sem við höfum í höndum.

Hér á Íslandi þurfum við ekki að giska á svarið. Það er birt opinberlega í Landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026–2030, sem er á vegum Dómsmálaráðuneytisins og inniheldur 25 aðgerðir í sjö undirflokkum. Áætlunin tekur beinlínis mið af Istanbúlsamningnum — hún er í raun íslenska innleiðingin á honum. Hún er ekki óskýr metnaðaryfirlýsing; heldur listi yfir verk sem á að vinna, með mælaborði sem er uppfært tvisvar á ári. 

Mælaborðið er mjög læsilegt. Það sýnir að langflestar aðgerðanna eru enn á byrjunarstigi og inniheldur m.a. samræmt verklag í heilbrigðisþjónustu, aðgengi að þjónustu um land allt, fræðsla innan réttarvörslukerfisins, kortlagning og fræðsla um heiðurstengt ofbeldi og gagnaöflun um allar tegundir kynbundins ofbeldis. Aðeins tvær aðgerðir af 25 eru merktar lokið. Þetta er ekki ásökun um aðgerðaleysi. Það er sú staðreynd sem við þurfum að horfast í augu við: planið er til, skjölin eru til, skuldbindingarnar eru til — en verkið er rétt að byrja. Og það er einmitt hlutverk okkar allra að halda því á lofti.

Eina undirliggjandi spurningin

Í gegnum alla sextán dagana, frá 25. nóvember til 10. desember, vefur sig ein spurning: „Samþykkt. Undirritað. Framkvæmt?“

Hún er ekki til að véfengja samninginn heldur til að gera hann að veruleika. Hún er ekki ásökun heldur áminning um að samningur á pappír breytir engu fyrr en hann birtist í fjárveitingum, í skólakerfinu, á heilsugæslunni og í lögreglunni. 

Átakinu er ekki lokið 10. desember. Þá hefst verkið. Mánuðirnir á milli átaksins Roðagyllum heiminn,  er tími breytinga í betri átt— ef við látum ekki athyglina fjara út með jólunum.

Hvað getur hvert okkar gert?

Þetta er ekki áskorun um að gera stórvirki. Það er áskorun um að gera eitthvað.

Fyrir þig sem ert kennari: komdu fræðsluefni um kynbundið ofbeldi inn í skólann þinn —Því fyrr sem við náum til unga fólksins, því betra.

Fyrir þig sem vinnur í heilsugæslu, lögreglu eða skóla: 15. grein samningsins kveður á um þjálfun fagfólks. Er starfsfólk þjálfað til að þekkja ofbeldi ef ekki óskarðu eftir þjálfun. Ekki bíða eftir að einhver annar geri það og það gerist ekki.

Fyrir fyrirtæki og stofnanir: Roðagyllið bygginguna ykkar í átakinu. Það er lítil aðgerð, en hún segir eitthvað — og hún minnir fólk á að málið er ekki afgreitt.

Fyrir okkur öll: Rjúfum þögnina, deilum sögum og póstum. Oft er það þögnin í kringum þolendur sem gerir ofbeldinu kleift að halda áfram.

Ábyrgðin er ekki þeirra sem þjást

Það er auðvelt að horfa á tölur um ofbeldi gegn konum — ein af hverjum þremur konum á heimsvísu — og upplifa þær sem við upplýsingar sem við tengjum ekki við.  Eitthvað sem gerist annars staðar, hjá öðrum.

En ofbeldið er hér. Það er í samböndum, á netinu, í skólum, á vinnustöðum. Og rauðu ljósin eru oft sýnileg löngu áður en einhver þorir að segja frá.

Í sextán daga vitundarvakningunni ætlum við að nefna rauðu ljósin. Við ætlum að spyrja ráðamenn hvað varð um loforðin. Og við ætlum ekki að hætta að spyrja þegar dagarnir sextán eru liðnir.

Samþykkt. Undirritað. Framkvæmt?

Þetta er ekki spurning til stjórnvalda eingöngu. Það er spurning til okkar allra.

Guðný S. Magnúsdóttir,
verkefnastjóri Soroptimistasambands Íslands

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100